1
Fólk

Björk komin með kærustu

2
Heimur

Getur misst af tveimur milljörðum eftir mistök í verslun

3
Heimur

Kona og karl drukknuðu á Kanarí

4
Fólk

Aukin sálarró á miðjum aldri: 8 atriði sem hjálpa

5
Heimur

Hermannaveiki herjar á New York-búa

6
Pólitík

„Nú verður að stöðva vitleysuna“

7
Heimur

Rutte krafinn svara eftir þögn við hlið Trump

8
Heimur

Maður sem sýndi HM-leiki á Gaza drepinn af Ísraelum

9
Innlent

Straumhvörf í endómetríósugreiningu

10
Pólitík

„Er „Áfram Ísland!“ í raun og veru „Stopp nú, Ísland!“ hreyfingin?“

Til baka

Reynslusaga móður sem leitaði út fyrir landsteinana eftir hjálp fyrir son sinn

Í þættinum er fjallað um alvarlegar ásakanir um börn í vanda

Týndu strákarnir
Börn í vandaÍ þættinum er bruninn á Stuðlum ræddur í samhengi við öryggi, eftirlit, rannsókn málsins og ábyrgð þeirra sem bera skyldu til að tryggja öryggi barna í vörslu hins opinbera.
Mynd: Unsplash/Anton Ryazanov

Ingibjörg Einarsdóttir ræðir reynslu sína sem móðir drengs með fjölþættan vanda, meðferð í Suður-Afríku og það sem hún lýsir sem óheiðarlegum vinnubrögðum kerfis sem átti að hjálpa barninu hennar í nýjasta hlaðvarpsþætti Týndu strákanna sem fer í loftið eftir helgi.

Í þættinum er fjallað um alvarlegar ásakanir um börn í vanda, Stuðla og ábyrgð kerfisins og þær alvarlegu spurningar sem vakna þegar foreldrar telja að íslensk úrræði dugi ekki barni í bráðum vanda.

Reynslusaga móður sem leitaði út fyrir landsteinana

Í þættinum koma fram alvarlegar ásakanir um samskipti foreldra við kerfið, skort á sérhæfðum úrræðum á Íslandi, upplýsingar sem Ingibjörg segir að hafi reynst rangar, óheiðarleg vinnubrögð gagnvart foreldrum og stöðu barna sem eru vistuð í úrræðum á vegum hins opinbera.

Ingibjörg segir meðal annars frá því að henni hafi verið sagt ósatt um meðferð erlendis, að engir sérfræðingar hafi verið til staðar hér á landi til að mæta vanda sonar hennar með viðeigandi hætti og að fjölskyldan hafi á endanum þurft að leita til Suður-Afríku til að fá meðferð sem hún telur hafa skipt sköpum.

Hún lýsir gríðarlegum mun á syni sínum eftir meðferðina í Suður-Afríku og ræðir hvers vegna hún telur að foreldrar barna með fjölþættan vanda séu of oft skildir eftir einir með ábyrgð sem ætti að vera sameiginleg ábyrgð fjölskyldu, fagfólks, stofnana og stjórnvalda.

Spurningar um gagnreyndar aðferðir

Í þættinum er farið inn á gagnreyndar aðferðir Barna- og fjölskyldustofu (BOFS) en hlaðvarpsstjórnendur hafa óskað eftir upplýsingum um hvaða aðferðir eru notaðar í meðferð barna og ungmenna, hvaða gögn styðja þær, hver ber ábyrgð á innleiðingu þeirra og hvernig árangur er metinn.

Alvarlegar frásagnir um Stuðla

Sérstakur hluti þáttarins snýr að Stuðlum, ábyrgð, verklagi og öryggi barna sem vistuð eru þar. Þar koma fram frásagnir um fjárkúgun meðal vistmanna, vitneskju starfsfólks um alvarleg atvik, skort á upplýsingagjöf til foreldra og ásakanir um að ekki hafi verið brugðist við með þeim hætti sem foreldrar telja eðlilegt þegar grunur vaknar um lögbrot eða hættulegar aðstæður.

Í þættinum er einnig rætt um frásagnir af vændi og fullorðnum einstaklingum í tengslum við umhverfi barna í vanda. Týndu strákarnir setja þær frásagnir fram sem alvarlegan vitnisburð sem kallar á skýr svör, rannsókn og ábyrgð, ekki sem staðfesta niðurstöðu án gagna.

Bruninn á Stuðlum og rannsókn málsins

Þá er bruninn á Stuðlum ræddur í samhengi við öryggi, eftirlit, rannsókn málsins og ábyrgð þeirra sem bera skyldu til að tryggja öryggi barna í vörslu hins opinbera.

Umfjöllunin tengist einnig sögu Jóns K. Jacobsen, föður Geirs Arnar Jacobsen, sem lést eftir eldsvoða á Stuðlum. Jón er með Steindóri Þórarinssyni í Týndu strákunum. Reynsla Jóns og reynsla Ingibjargar koma úr ólíkum áttum en snerta sama kjarna: börn í lífshættu, foreldra sem treysta á kerfið og spurningar um hvað gerist þegar úrræði, eftirlit og ábyrgð halda ekki.

Formlegt erindi til barna- og fjölskyldustofu (BOFS)

Týndu strákarnir hafa einnig sent formlegt erindi til BOFS og óskað eftir samtali og gögnum um meðferðarúrræði barna, barnavernd, eftirfylgni, verklag, gæðaviðmið, gagnreyndar aðferðir, árangursmat, frávik, kvartanir, úttektir og ábyrgð.

Þá hafi þeir einnig sent erindið í afriti til framkvæmdastjórnar BOFS, Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, mennta- og barnamálaráðuneytis, mennta- og barnamálaráðherra og velferðarnefndar Alþingis.

Í erindinu er tekið skýrt fram að ekki sé óskað eftir persónugreinanlegum upplýsingum um börn eða fjölskyldur. Óskað er eftir almennum gögnum um verklag, leiðbeiningar, fagleg viðmið, ábyrgð, eftirlit, frávik og viðbrögð þegar úrræði bregðast barni.

Týndu strákarnir telja að slík gögn eigi að liggja skýrt fyrir í kerfi sem sinnir börnum í alvarlegri stöðu. Ef erfitt reynist að afhenda þau eða skýra ábyrgðina vakna eðlilegar spurningar um yfirsýn, framkvæmd og eftirlit.

Markmiðið

Týndu strákarnir segja að markmið umfjallana sé ekki að kynda undir reiði, heldur er markmiðið að koma alvarlegum frásögnum upp á yfirborðið, leita gagna, óska eftir andsvörum og fylgja málunum eftir opinberlega. Hér er listi yfir spurningar sem Týndu strákarnir hafa óskað eftir að kerfið svari eftirfarandi spurningum:

  • Hvað gerist þegar barn er komið í lífshættu og úrræðin duga ekki?
  • Hver ber ábyrgð þegar barn fer á milli kerfa, stofnana og skilgreininga?
  • Hvaða gagnreyndu aðferðir eru notaðar í úrræðum fyrir börn með fjölþættan vanda?
  • Hvernig er árangur metinn?
  • Hvað gerist þegar verklag bregst?
  • Hver ber ábyrgð þegar foreldrar segja að barnið þeirra sé ekki lengur öruggt?
  • Og hver svarar þegar börn verða fyrir alvarlegum atvikum innan kerfis sem á að vernda þau?

Týndu strákarnir er hlaðvarpslaðvarps- og fjölmiðlaverkefni framleitt af Samson.is. Verkefnið fjallar um börn og ungmenni sem hafa lent í alvarlegum vanda, foreldra og aðstandendur, fagfólk, stofnanir og þá ábyrgð sem fylgir því þegar börn eru vistuð í úrræðum á vegum hins opinbera.

Verkefnið er ekki hagsmunasamtök og ekki almennur gagnagrunnur um stöðu barna. Týndu strákarnir er ritstjórnarlegt verkefni þar sem rætt er við fólk sem hefur lent í kerfinu, aðstandendur, fagfólk og eftir föngum fólk í ábyrgðarstöðum. Frásagnir eru settar í samhengi við gögn, verklag, formleg erindi og svör þeirra stofnana sem bera ábyrgð.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Lífshakkarinn“ Bryan Johnson með ólæknandi sjálfsofnæmissjúkdóm
Heimur

„Lífshakkarinn“ Bryan Johnson með ólæknandi sjálfsofnæmissjúkdóm

„Þetta er dásamlegt“
Sonur Netanyahu breytir um nafn
Heimur

Sonur Netanyahu breytir um nafn

Íslenski hesturinn fær stærri sess
Innlent

Íslenski hesturinn fær stærri sess

Bragi Hannesson er fallinn frá
Minning

Bragi Hannesson er fallinn frá

„Nú verður að stöðva vitleysuna“
Pólitík

„Nú verður að stöðva vitleysuna“

Hermannaveiki herjar á New York-búa
Heimur

Hermannaveiki herjar á New York-búa

Íran sakar Bandaríkin um árás á virkt kjarnorkuver
Heimur

Íran sakar Bandaríkin um árás á virkt kjarnorkuver

„Er „Áfram Ísland!“ í raun og veru „Stopp nú, Ísland!“ hreyfingin?“
Pólitík

„Er „Áfram Ísland!“ í raun og veru „Stopp nú, Ísland!“ hreyfingin?“

Netglæpum fjölgar á Íslandi
Innlent

Netglæpum fjölgar á Íslandi

Maður skar af sér liminn og bar eld að
Heimur

Maður skar af sér liminn og bar eld að

Enginn hefur hlaupið hraðar yfir Ísland
Innlent

Enginn hefur hlaupið hraðar yfir Ísland

Getur misst af tveimur milljörðum eftir mistök í verslun
Heimur

Getur misst af tveimur milljörðum eftir mistök í verslun

Innlent

Reynslusaga móður sem leitaði út fyrir landsteinana eftir hjálp fyrir son sinn
Innlent

Reynslusaga móður sem leitaði út fyrir landsteinana eftir hjálp fyrir son sinn

Í þættinum er fjallað um alvarlegar ásakanir um börn í vanda
Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Íslenski hesturinn fær stærri sess
Innlent

Íslenski hesturinn fær stærri sess

Netglæpum fjölgar á Íslandi
Innlent

Netglæpum fjölgar á Íslandi

Enginn hefur hlaupið hraðar yfir Ísland
Innlent

Enginn hefur hlaupið hraðar yfir Ísland

Straumhvörf í endómetríósugreiningu
Innlent

Straumhvörf í endómetríósugreiningu

Loka auglýsingu