1
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

2
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

3
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

4
Fólk

Stjarnan á Sólheimum

5
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

6
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

7
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

8
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

9
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

10
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

Til baka

„Seilist enn á ný í vasa almennings“

Diljá Mist hjólar í nýtt fjárlagafrumvarp

Diljá Mist
Diljá Mistfurðar sig á leið ríkisstjórnarinnar
Mynd: Víkingur

Nýtt fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027, sem kynnt var í dag, mætir harðri andstöðu af hálfu stjórnarandstöðunnar. Diljá Mist Einarsdóttir, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir harðlega í opinberri færslu og segir árangur stjórnvalda hingað til engan.

Í nýja frumvarpinu er boðuð dulin skatthækkun á almenning með því að láta persónuafslátt og skattþrep hækka minna en núgildandi reglur segja til um. Þessi breyting, sem stjórnvöld rökstyðja með vísan til styttri vinnuviku og minni framleiðniaukningar, á að skila ríkissjóði 3,1 milljarði króna í auknar tekjur árið 2027. Auk þess er áformað að hækka bankaskatt um rúmlega 75 prósent.

Gagnrýnir efnahagslegt árangursleysi

Diljá Mist segir jákvætt að stefnt sé að hallalausum fjárlögum fyrir árið 2027, enda sé nauðsynlegt að vinna á þeim hallarekstri sem myndaðist vegna ítrekaðra áfalla undanfarin ár. Hún setur hins vegar stórt spurningarmerki við þá leið sem ríkisstjórnin velur til að ná því markmiði.

„Leiðin sem ríkisstjórnin velur að þeim eru hins vegar skatta- og gjaldahækkanir á fólk og fyrirtæki í landinu. Mér er það til efs að þessar hækkanir muni skila tilætluðum tekjum — það er s.s. ólíklegt að planið gangi eftir,“ ritar Diljá og bætir við að landsmenn séu orðnir vanir því með þessa ríkisstjórn.

Hún sakar stjórnvöld um að skjóta sér undan erfiðum ákvörðunum í ríkisrekstrinum. „Í stað þess að draga úr útgjöldum og minnka ríkisbáknið seilist ríkisstjórnin enn á ný í vasa almennings.“

Að mati Diljár vinna þessar aðgerðir beinlínis gegn því meginmarkmiði sem ríkisstjórnin var kosin til að fylgja eftir. „Þessar aðgerðir eru ekki til þess fallnar að ná niður verðbólgu og þar með vöxtum eins og stjórnin var kosin til að gera. Árangur þeirra hefur enda hingað til verið enginn.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Myndir
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

Húsið var reist árið 1970
Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan
Heimur

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
Viðtal
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins
Heimur

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

„Fram undan er mikil vinna, en hér er líka sterkur vilji til að gera gott samfélag enn betra“
Tekið verði fastar á umhverfisníðingum
Pólitík

Tekið verði fastar á umhverfisníðingum

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum
Pólitík

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum

Loka auglýsingu