1
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

2
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

3
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

4
Heimur

Dularfullur hlutur úr geimnum fannst á miðjum maísakri

5
Minning

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá

6
Heimur

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi

7
Fólk

Stjarnan á Sólheimum

8
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

9
Innlent

Tugir áverka meðal starfsfólks grunnskóla Reykjavíkur

10
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Til baka

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

Athygli vekur að Sigríður tók ekki fram að síðan þá hafi her Ísrael drepið rúmlega 74 þúsund Palestínumenn

Sigríður Andersen
Sigríður Á. Andersen
Mynd: Víkingur

Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, kallaði eftir því á Alþingi í dag að utanríkisráðherra Íslands tjáði sig um fréttir þess efnis að mynd af ráðherranum hefði birst á skiltum í Teheran í Íran.

Sigríður ræddi málið undir liðnum störf þingsins og hóf mál sitt á að minnast árásanna á Ísrael 7. október 2023. Hún sagði nákvæmlega þrjú ár liðin frá því að heimurinn hefði vaknað við hryllingsfréttir af árásunum.

„Það eru nákvæmlega þrjú ár síðan heimurinn vaknaði upp við hryllingsfréttir frá Ísrael,“ sagði Sigríður og vísaði til árásanna þar sem um 1.200 manns voru drepnir. Hún sagði Ísrael hafa verið í stríði frá þeim degi og kvaðst vonast til þess að nú sæi fyrir endann á átökunum. Athygli vekur að Sigríður tók ekki fram að síðan þá hafi her Ísrael drepið rúmlega 74 þúsund Palestínumenn samkvæmt Reuters og AP.

Þá eru Amnesty International, ísraelsku mannréttindasamtökin B'Tselem og óháð rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna meðal þeirra sem hafa komist að þeirri niðurstöðu að Ísrael hafi framið þjóðarmorð á Gaza. Alþjóðadómstóllinn hefur hins vegar ekki kveðið upp endanlegan dóm um hvort Ísrael beri lagalega ábyrgð á þjóðarmorði.“

Gagnrýnir viðbrögð utanríkisráðherra

Sigríður beindi því næst sjónum sínum að framgöngu Þorgerðar Katrín Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra Íslands, gagnvart Ísrael. Hún vísaði til nýlegs þings Sameinuðu þjóðanna og sagði ráðherrann hafa séð sig knúinn til að gagnrýna forsætisráðherra Ísraels vegna ákalls hans um að fulltrúar ríkja sætu undir ræðu hans.

„Á þingi Sameinuðu þjóðanna á dögunum fann hæstv. utanríkisráðherra Íslands sig knúinn til þess að atyrða forsætisráðherra Ísraels fyrir það eitt að vera með ákall um það á þingi Sameinuðu þjóðanna að fulltrúar ríkja Sameinuðu þjóðanna sætu undir ræðu hans. Hæstv. utanríkisráðherra Íslands sá sig knúinn til að atyrða forsætisráðherra Ísraels fyrir þetta.“

Þá vék Sigríður að fréttum um að utanríkisráðherra Íslands hefði birst á skiltum í Teheran. Hún lýsti undrun sinni yfir málinu og sagði Íran vera helsta stuðningsríki Hamas.

„Um helgina vaknaði ég upp við frétt sem ég trúði jafn illa og ég trúði hryllingsfréttunum fyrir þremur árum,“ sagði Sigríður og vísaði þar til skiltanna.

Hún sagði Þorgerði Katrínu ekki hafa viljað tjá sig um málið og kallaði eftir því að það yrði gert.

„Ég kalla eftir því að utanríkisráðherra Íslands tjái sig um þetta mál,“ sagði Sigríður.

Hún lauk máli sínu með harðri gagnrýni og sagðist sjálf ekki myndu sætta sig við að mynd af henni væri notuð með þessum hætti í Íran.

„Sjálf myndi ég ekki una mér hvíldar fyrr en þetta skilti í Íran, hjá klerkastjórninni og þeim brjálæðingum sem þar stjórna, með ljósmynd af sjálfri mér hefði verið tekið niður.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Innköllun nær til Xpeng G6 og G9 af árgerðunum 2025 og 2026 vegna bilunar í læsingarbúnaði dráttarbeislis.
Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio
Myndband
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli
Heimur

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

Jódís Skúladóttir sakar ríkisstjórnina um hroka
Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum
Pólitík

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum

Tekið verði fastar á umhverfisníðingum
Pólitík

Tekið verði fastar á umhverfisníðingum

Loka auglýsingu