Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

Athygli vekur að Sigríður tók ekki fram að síðan þá hafi her Ísrael drepið rúmlega 74 þúsund Palestínu­menn

Sigríður Á. Andersen
Sigríður Á. Andersen Mynd: Víkingur

Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, kallaði eftir því á Alþingi í dag að utan­ríkis­ráðherra Íslands tjáði sig um fréttir þess efnis að mynd af ráðherranum hefði birst á skiltum í Teheran í Íran.

Sigríður ræddi málið undir liðnum störf þingsins og hóf mál sitt á að minnast árásanna á Ísrael 7. október 2023. Hún sagði nákvæmlega þrjú ár liðin frá því að heimurinn hefði vaknað við hryllings­fréttir af árásunum.

„Það eru nákvæmlega þrjú ár síðan heimurinn vaknaði upp við hryllings­fréttir frá Ísrael,“ sagði Sigríður og vísaði til árásanna þar sem um 1.200 manns voru drepnir. Hún sagði Ísrael hafa verið í stríði frá þeim degi og kvaðst vonast til þess að nú sæi fyrir endann á átökunum. Athygli vekur að Sigríður tók ekki fram að síðan þá hafi her Ísrael drepið rúmlega 74 þúsund Palestínu­menn samkvæmt Reuters og AP.

Þá eru Amnesty International, ísraelsku mann­réttinda­samtökin B'Tselem og óháð rann­sóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna meðal þeirra sem hafa komist að þeirri niður­stöðu að Ísrael hafi framið þjóðar­morð á Gaza. Alþjóða­dómstóllinn hefur hins vegar ekki kveðið upp endanlegan dóm um hvort Ísrael beri lagalega ábyrgð á þjóðar­morði.“

Gagnrýnir viðbrögð utanríkisráðherra

Sigríður beindi því næst sjónum sínum að framgöngu Þorgerðar Katrín Gunnars­dóttur, utan­ríkis­ráðherra Íslands, gagnvart Ísrael. Hún vísaði til nýlegs þings Sameinuðu þjóðanna og sagði ráðherrann hafa séð sig knúinn til að gagnrýna forsætis­ráðherra Ísraels vegna ákalls hans um að fulltrúar ríkja sætu undir ræðu hans.

„Á þingi Sameinuðu þjóðanna á dögunum fann hæstv. utan­ríkis­ráðherra Íslands sig knúinn til þess að atyrða forsætis­ráðherra Ísraels fyrir það eitt að vera með ákall um það á þingi Sameinuðu þjóðanna að fulltrúar ríkja Sameinuðu þjóðanna sætu undir ræðu hans. Hæstv. utan­ríkis­ráðherra Íslands sá sig knúinn til að atyrða forsætis­ráðherra Ísraels fyrir þetta.“

Þá vék Sigríður að fréttum um að utan­ríkis­ráðherra Íslands hefði birst á skiltum í Teheran. Hún lýsti undrun sinni yfir málinu og sagði Íran vera helsta stuðnings­ríki Hamas.

„Um helgina vaknaði ég upp við frétt sem ég trúði jafn illa og ég trúði hryllings­fréttunum fyrir þremur árum,“ sagði Sigríður og vísaði þar til skiltanna.

Hún sagði Þorgerði Katrínu ekki hafa viljað tjá sig um málið og kallaði eftir því að það yrði gert.

„Ég kalla eftir því að utan­ríkis­ráðherra Íslands tjái sig um þetta mál,“ sagði Sigríður.

Hún lauk máli sínu með harðri gagnrýni og sagðist sjálf ekki myndu sætta sig við að mynd af henni væri notuð með þessum hætti í Íran.

„Sjálf myndi ég ekki una mér hvíldar fyrr en þetta skilti í Íran, hjá klerka­stjórninni og þeim brjálæðingum sem þar stjórna, með ljósmynd af sjálfri mér hefði verið tekið niður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Pólitík

„Við skulum ekki gera lítið úr baráttu íslenskra kvenna“

Á alþjóðadegi Sameinuðu þjóðanna gegn ofbeldi á konum ræddi Diljá Mist Einarsdóttir stöðu kvenna
  • Grímur þekkir óttann um öryggi fjöl­skyldunnar

  • „Ég vil ekki mæta í fleiri jarðar­farir ungra manna“

  • Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

  • Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

  • Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun