1
Heimur

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife

2
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

3
Innlent

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið

4
Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

5
Innlent

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði

6
Fólk

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu

7
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

8
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

9
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

10
Innlent

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið

Til baka

„Snorri veit nákvæmlega hvað hann er að gera með þessu“

Fyrrverandi framkvæmdarstjóri Samtakanna 78 hjólar í Snorra Másson

Alþingi óundirbúnar fyrirspurnir - Snorri Másson
Snorri MássonDaníel segir Snorra vita nákvæmlega hvað hann sé að gera
Mynd: Víkingur

Daníel E. Arnarsson, fyrrverandi framkvæmdarstjóri Samtakanna 78, gagnrýnir Snorri Másson, varaformann Miðflokkurinn, harðlega í Facebook-færslu í kjölfar umræðu hans um sýnileika regnbogafánans í grunnskólum landsins.

Í færslunni segir Daníel að Snorri viti vel hvað hann sé að gera með ummælum sínum og að umræðan snúist ekki um raunveruleg vandamál. Hann bendir á að regnbogafáninn sé tákn hinsegin fólks og að nærvera hans í skólum sé meðvituð ákvörðun starfsfólks til að skapa öruggt og opið umhverfi fyrir alla nemendur. Daníel skrifar:

„Elsku Snorri. Hugsa til hans. Myndi hlæja ef þetta væri ekki svona skaðlegt. Snorri veit nákvæmlega hvað hann er að gera með þessu. Regnbogafáninn er tákn okkar hinsegin fólks og er sýnilegur í skólum landsins af því að starfsfólk skóla vill búa til umhverfi þar sem öll eru velkomin og á sama tíma sýna hinsegin krökkum aukna viðleitni. En Snorri veit þetta alveg.“

Daníel sakar Snorra um að skapa vísvitandi ágreining og beina athyglinni frá mikilvægari málefnum. Að hans mati sé verið að „trufla, búa til hávaða“ og finna vandamál þar sem þau séu ekki til staðar.

„Ef það er regnbogafáni í dag þá er það eitthvað annað á morgun, en almætti forði honum að ræða málefni sem raunverulega skiptir fólkið í þessu landi máli.“

Hann segir jafnframt ámælisvert að kjörinn fulltrúi Alþingis nýti stöðu sína með þessum hætti í stað þess að vinna að hagsmunamálum almennings. Hann gagnrýnir að ráðist sé að minnihlutahópum ítrekað í stað þess að beina kröftum að brýnni verkefnum samfélagsins.

„Mér finnst magnað að maður sem er kjörinn á Alþingi, sem er valdahlutverk, með mýmörg verkefni til að bæta hag fólks velji frekar að búllía minnihlutahópa við hvert tækifæri. Það er nóg að gera í öllum málaflokkum ríkisins, ég er viss um það, en í staðinn velur hann þetta.“

Í færslunni hafnar Daníel einnig þeirri orðræðu sem byggi á ótta við ákveðna hópa og nefnir sérstaklega innflytjendur og transfólk. Hann segir mikilvægt að samfélagið byggist á viðurkenningu, virðingu og fjölbreytileika fremur en ótta.

„Það er ekkert að óttast innflytjendur og það er ekkert að óttast trans fólk. Það er ekki hollt að vera hræddur við það sem við ekki þekkjum, þá förum við bara að sofa illa, fá magasár og verðum að lokum reið og döpur.“

Að lokum lýsir hann óánægju með framgöngu kjörinna fulltrúa sem, að hans mati, tali niður til fólks og dragi úr virði ákveðinna hópa. Hann kallar eftir jákvæðari nálgun þar sem lögð er áhersla á að efla samfélagið og styðja við alla landsmenn.

„Ég persónulega er kominn með nóg af kjörnum fulltrúum sem tala niður til fólksins í landinu, segja okkur hvað er ekki hægt að gera og tala um að ákveðnir hópar samfélagsins séu minna virði. Því það er alveg hægt að tala fólk upp, fagna fólkinu okkar og vinna fyrir land og þjóð. Eða var þetta fólk ekki kosið til þess að gera það?“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús
Innlent

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera
Heimur

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna
Heimur

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum
Heimur

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu
Myndband
Heimur

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð
Heimur

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé
Heimur

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna
Innlent

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna

Innlent

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús
Innlent

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna
Innlent

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

Loka auglýsingu