
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig og eru þeir nú 8 prósent. Fjórir nefndarmenn studdu ákvörðunina en einn vildi halda vöxtum óbreyttum.
Verðbólga hefur verið yfir 5 prósent það sem af er ári og mældist 5,3 prósent í júlí. Seðlabankinn gerir ráð fyrir að hún aukist á næstu mánuðum en hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári.
Aukin verðbólga skýrist einkum af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Undirliggjandi verðbólga hefur þó haldist stöðug og tekið að hjaðna á suma mælikvarða.
Peningastefnunefnd segir verðbólguvæntingar enn of háar og óvissu mikla. Því sé nauðsynlegt að tryggja nægjanlegt peningalegt aðhald. Stóru viðskiptabankarnir þrír höfðu allir spáð 0,25 prósentustiga hækkun vaxta.
