1
Innlent

Séra Guðni yfirgefur Ísland

2
Heimur

Einkaþota sprakk í neyðarlendingu

3
Heimur

Ungur karlmaður alvarlega slasaður eftir hópárás á vinsælum ferðamannastað

4
Fólk

Selja snoturt einbýli með stórum garði

5
Fólk

Bíl Láru Clausen stolið

6
Fólk

Sveinn Andri gifti sig um helgina

7
Innlent

Íslenskar konur þær reiðustu á Norðurlöndum

8
Heimur

Faldi 55 milljónir í bleyjum

9
Innlent

Lögreglan mætti í íslenskt spilavíti

10
Heimur

Vélmenni sparkaði virkilega fast í barn

Til baka

Þórir Þorsteinsson er fallinn frá

Kerti
Ljósmynd: Manoj Dewangan – pexels.com

Þórir Þorsteinsson prentari og fyrrum landsliðsmaður í handknattleik, er látinn, 92 ára að aldri.

Þórir fæddist í Reykjavík 11. september 1933 og lést á Hrafnistu Laugarási 27. nóvember 2025. Foreldrar hans voru Jónína Dagný Albertsdóttir (f. 1904, d.1977) og Þorsteinn Þorvarðarson (f. 1899, d.1934). Systur hans voru Steinunn (f. 1923, d. 2003) og Margrét (f. 1925, d. 2000). Morgunblaðið greindi frá andlátinu.

Hinn 19. nóvember 1955 kvæntist Þórir eiginkonu sinni, Önnu Jónu Óskarsdóttur, f. 25. desember 1932. Börn þeirra eru fjögur:

Ingibjörg (f. 1954), og börn hennar: Hrafnhildur (f. 1977), Hjörtur (f. 1979), Þórunn (f. 1985) og Þórir (f. 1986).

Dagný (f. 1958), gift Kjartani Páli Einarssyni, og dætur þeirra: Önnu Jónu (f. 1985), Auði (f. 1991) og Hildi Björg (f. 1994).

Auður Ósk (f. 1961), gift Eyjólfi Jónssyni, og synir þeirra: Snæbjörn Þórir (f. 1993) og Þorsteinn Orri (f. 1997).

Óskar (f. 1966), kvæntur Ástu Eyjólfsdóttur, og synir þeirra: Eyþór Gísli (f. 1995) og Einar Már (f. 1998).

Barnabarnabörnin eru alls tuttugu.

Þórir hóf nám í prentiðn ungur og lauk sveinsprófi í setningu í nóvember 1956. Hann gekk til liðs við Morgunblaðið árið 1959 og starfaði þar allt til starfsloka, lengst af við útlitshönnun.

Á yngri árum spilaði Þórir handbolta með KR og á að baki landsleiki fyrir Íslands hönd. Hann varð Íslandsmeistari árið 1958 og átti í 23 ár markamet félagsins í einstökum leik, 16 mörk, sett árið 1959.

Þórir bjó alla ævi í Reykjavík. Hann og Anna Jóna ferðuðust mikið saman, áttu ánægjulegar stundir í útivist og sinntu hestamennsku um árabil áður en golfið tók við síðar á ævinni.

Útför Þóris hefur þegar farið fram í kyrrþey, í samræmi við óskir hans.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kírópraktor skipti sköpum í dómsmáli á Sauðárkróki
Innlent

Kírópraktor skipti sköpum í dómsmáli á Sauðárkróki

Maðurinn var ákærður fyrir að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis
Sekmeth
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Sekmeth

Selja áhugavert en óklárað hús í Garðabæ
Myndir
Fólk

Selja áhugavert en óklárað hús í Garðabæ

Brauðið dregur máva að Tjörninni
Innlent

Brauðið dregur máva að Tjörninni

Vélmenni sparkaði virkilega fast í barn
Myndband
Heimur

Vélmenni sparkaði virkilega fast í barn

Séra Guðni yfirgefur Ísland
Innlent

Séra Guðni yfirgefur Ísland

Nintendo sektað um 40 milljónir dollara
Heimur

Nintendo sektað um 40 milljónir dollara

Vill gera glæpamönnum á Íslandi erfitt fyrir
Pólitík

Vill gera glæpamönnum á Íslandi erfitt fyrir

Íslenskar konur þær reiðustu á Norðurlöndum
Innlent

Íslenskar konur þær reiðustu á Norðurlöndum

Munu þurfa dómsúrskurð vegna Jónasar
Innlent

Munu þurfa dómsúrskurð vegna Jónasar

Minning

Steingrímur Ari Arason er látinn
Minning

Steingrímur Ari Arason er látinn

Jón Guðni Pétursson er látinn
Minning

Jón Guðni Pétursson er látinn

Vigfús Kristinn Vigfússon er fallinn frá
Minning

Vigfús Kristinn Vigfússon er fallinn frá

Áslaug Kristjánsdóttir er fallin frá
Minning

Áslaug Kristjánsdóttir er fallin frá

Loka auglýsingu