1
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

2
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

3
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

4
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

5
Heimur

Dularfullur hlutur úr geimnum fannst á miðjum maísakri

6
Fólk

Stjarnan á Sólheimum

7
Minning

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá

8
Heimur

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi

9
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

10
Innlent

Tugir áverka meðal starfsfólks grunnskóla Reykjavíkur

Til baka

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

Í útlendingamálum vill hreyfingin draga verulega úr móttöku flóttafólks

Ungir Miðflokksmenn 2
Ný stjórn Ungra Miðflokksmanna
Mynd: Aðsend

Salma Björk Önnudóttir var kjörin nýr formaður ungliðahreyfingar Miðflokksins á aukaaðalfundi hreyfingarinnar í Hamraborg. Hún tekur við formennsku af Antoni Sveini McKee, sem gegnt hefur embættinu síðustu tvö ár.

Jón Hjörtur Kröyer var kjörinn varaformaður en auk hans voru fimm aðrir kjörnir í stjórn.

Á fundinum samþykktu ungir Miðflokksmenn umfangsmikla ályktun um meðal annars fjölskyldu-, skóla-, hinsegin- og útlendingamál auk stöðu íslenskrar tungu.

Í skólamálum gagnrýnir hreyfingin skóla án aðgreiningar og vill styrkja stöðu sérskóla og sérdeilda. Þá er aðalnámskrá frá árinu 2011 gagnrýnd og lagt til að aukin áhersla verði lögð á lestur, réttritun og reikning.

Hreyfingin hafnar jafnframt því að utanaðkomandi samtök séu fengin „til að kenna börnum tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ en væntanlega er verið að vísa í Samtökin 78 í þeim efnum. Kynfræðsla eigi þess í stað að vera í höndum kennara og foreldra. Rétt er þó að taka fram að Samtökin 78 sjá ekki um kynfræðslukennslu í skólum heldur er slíkt í höndum kennara. Þá leggst hreyfingin gegn kynþroskabælandi meðferðum og krosshormónameðferðum fyrir börn undir 18 ára aldri.

Í útlendingamálum vill hreyfingin draga verulega úr móttöku flóttafólks og leggja meiri áherslu á aðstoð í heimahögum. Einnig verði gerðar strangari kröfur til ríkisborgararéttar og aðlögunar að íslensku samfélagi. Þá styður hreyfingin bann við tilteknum íslömskum klæðaburði og hafnar tilslökunum vegna halal- og kosher-slátrunar.

Að lokum er lögð rík áhersla á íslenska tungu. Hreyfingin vill að stjórnsýsla, þjónusta og auglýsingar séu á íslensku og að fólk greiði almennt sjálft fyrir túlkaþjónustu eftir meira en tólf mánaða dvöl hér á landi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins
Heimur

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins

Leiðtogi AfD sögð hafa vitað af ólöglegu kosningafé fyrr en hún viðurkenndi
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio
Myndband
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli
Heimur

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

Jódís Skúladóttir sakar ríkisstjórnina um hroka
Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum
Pólitík

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum

Tekið verði fastar á umhverfisníðingum
Pólitík

Tekið verði fastar á umhverfisníðingum

Loka auglýsingu