1
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

2
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

3
Heimur

Dularfullur hlutur úr geimnum fannst á miðjum maísakri

4
Minning

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá

5
Innlent

Tugir áverka meðal starfsfólks grunnskóla Reykjavíkur

6
Heimur

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi

7
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

8
Pólitík

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum

9
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

10
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

Til baka

Urðunarsvæði orðið að vinsælum áfangastað ferðamanna

Yfirvöld hafa ítrekað varað við áhrifum úrgangsins

Indland ruslahaugur
Maður stillir sér upp fyrir mynd
Mynd: HIMANSHU SHARMA / AFP

Víðáttumikið svæði þakið hvítum marmaraúrgangi í Indlandi hefur á undanförnum árum orðið að óvenjulegum ferðamannastað. Landslagið minnir fremur á snævi þakinn fjalladal en iðnaðarsvæði þar sem úrgangi er fargað.

Svæðið er í Kishangarh í Rajasthan-ríki í norðvesturhluta Indlands, en borgin er ein helsta miðstöð marmaravinnslu landsins. Við skurð og slípun marmara og graníts verður til mikið magn af hvítri leðju og steinúrgangi sem safnast hefur upp á svæðinu.

Urðunarsvæðið nær yfir um 33 hektara og þangað berast daglega meira en 5.500 tonn af úrgangi frá yfir 1.200 vinnslustöðvum. Er það talið eitt stærsta urðunarsvæði sinnar tegundar í Asíu.

Þrátt fyrir iðnaðaruppruna svæðisins hefur það orðið vinsæll áfangastaður ferðamanna, kvikmyndagerðarfólks og áhrifavalda. Pör sækja þangað í myndatökur fyrir brúðkaup og landslagið hefur jafnframt verið notað við gerð kvikmynda og tónlistarmyndbanda. Þá er boðið upp á hestaferðir um hvítar hæðirnar.

Vinsældir staðarins hafa aukist mikið með samfélagsmiðlum, þar sem landslaginu er gjarnan líkt við snævi þakta Alpana. Eftir úrkomu safnast vatn í dældir milli úrgangshauganna og myndar bláar tjarnir sem gera ásýndina enn óvenjulegri.

Fegurð svæðisins leynir þó á umhverfisvandamálum. Yfirvöld hafa ítrekað varað við áhrifum marmaraúrgangsins, meðal annars vegna ryks og hættu á mengun grunnvatns. Rannsóknir hafa sýnt aukið magn salts og tiltekinna þungmálma í vatni í nágrenninu.

Æðsti umhverfisdómstóll Indlands fyrirskipaði í janúar að gripið yrði til úrbóta og hvatti meðal annars til aukinnar endurnýtingar marmaraleðjunnar. Dómstóllinn gagnrýndi jafnframt skort á mengunarvörnum og eftirliti á svæðinu.

Umhverfisáhættan virðist þó enn sem komið er ekki hafa dregið úr áhuga ferðamanna.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Innköllun nær til Xpeng G6 og G9 af árgerðunum 2025 og 2026 vegna bilunar í læsingarbúnaði dráttarbeislis.
Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio
Myndband
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli
Heimur

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio
Myndband
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

Repúblikanar sakaðir um að misnota sársaukafulla æsku pólitísks andstæðings
Kirkjubækur frá 19. öld hjálpuðu til við að upplýsa morð á Tenerife
Heimur

Kirkjubækur frá 19. öld hjálpuðu til við að upplýsa morð á Tenerife

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli
Heimur

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

Einn látinn og fjórir alvarlega særðir í skotárás nærri París
Heimur

Einn látinn og fjórir alvarlega særðir í skotárás nærri París

Öllum fjórum flugvöllum Moskvu lokað vegna drónaárása
Heimur

Öllum fjórum flugvöllum Moskvu lokað vegna drónaárása

Loka auglýsingu