Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Vel gengur að fanga minkana í Mosfellsdal

Foreldrar beðnir að hafa börnin ekki úti í vögnum

Björgunarsveitarmenn að störfum
Björg­un­ar­sveit­ar­menn að störfum Vel gengur að fanga mink­ana sem sluppu úr búinu Mynd: Mosfellsbaer.is

Aðgerðir vegna minkanna sem sluppu úr minkabúi í Mosfellsdal hafa gengið vel síðasta sólar­hringinn, að sögn yfirvalda Mosfells­bæjar. Veiðimenn á vegum sveitar­félagsins hafa fangað fleiri minka og bendir margt til þess að dýrin hafi ekki farið langt frá búinu.

Í tilkynningu Mosfells­bæjar kemur fram að minkar hafi eingöngu veiðst í gildrum sem stað­settar eru innan girðingar búsins en enginn hafi enn farið í gildrur utan hennar. Það sé vísbending um að flestir minkanna haldi sig enn í nágrenni búsins.

Þá segir að ábendingar frá íbúum Mosfells­bæjar um minka hafi verið mjög fáar, sem þyki góðs viti. Nokkrar tilkynningar hafi borist frá Norðlinga­holti, Grafar­holti og Grafar­vogi en talið sé ólíklegt að þeir minkar tengist atvikinu í Mosfellsdal.

Björgunar­sveitin sinnti veglokunum fram yfir miðnætti í gær og hóf aftur gæslu klukkan átta í morgun. Minka­veiðimenn á vegum Mosfells­bæjar verða áfram við störf næstu daga og vikur. Sveitar­félagið bendir á að þeir séu auðþekkjanlegir í gulum eða appelsínu­gulum vestum merktum Mosfellsbæ. Íbúar sem verða varir við ómerkta veiðimenn eru beðnir um að tilkynna það til bæjarins.

Mosfellsbær hyggst halda gildrum utan girðingar búsins næstu daga og vikur og verða þær yfir­farnar reglulega til að tryggja velferð dýranna.

Íbúar í næsta nágrenni við minkabúið eru jafnframt beðnir um að láta börn ekki sofa utandyra í barna­vögnum næstu daga. Þeir sem búa fjær eru hvattir til að setja net yfir vagnana.

Einnig er mælt með því að íbúar í Mosfellsdal haldi köttum sínum inni fram yfir helgi, fari með hunda í tauma­göngu og hafi alífugla innan girðingar.

Mosfellsbær segir að enginn minkur hafi enn verið fangaður í þéttbýli bæjarins og því sé ekki talin ástæða til að gera sérstakar ráðstafanir vegna gæludýra í öðrum hverfum sveitar­félagsins. Gæludýra­eigendur eru þó hvattir til að gæta fyllsta öryggis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum