Samkomulag um samstarf vegna hagsmunagæslu landaheitisins Ísland/Iceland hefur verið undirritað af stjórnvöldum og lykilaðilum úr atvinnulífinu en greint er frá þessu í tilkynningu frá stjórnvöldum.
Markmið samstarfsins er að vernda ímynd Íslands og gæta hagsmuna íslenskra útflutningsgreina þegar landaheitið er notað við markaðssetningu vara og þjónustu á erlendum mörkuðum.
Að samkomulaginu standa fulltrúar utanríkisráðuneytisins, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Samtaka atvinnulífsins, Hugverkastofunnar, Icelandic Trademark Holding ehf. og Íslandsstofu. Íslandsstofa mun hafa umsjón með vöktun landaheitisins auk þess að stýra verkefninu og samræma samstarfið.
Með samkomulaginu verður komið á sameiginlegu verklagi til að fylgjast með notkun landaheitisins erlendis og grípa til aðgerða þegar slíkt er talið geta skaðað hagsmuni íslenskra fyrirtækja eða útflutningsgreina. Markmiðið er að tryggja að landaheitið sé ekki notað með þeim hætti að það dragi úr sérstöðu Íslands eða skapi rugling á erlendum mörkuðum.
Samstarfið byggir meðal annars á reynslu sem íslensk stjórnvöld hafa aflað í langvarandi vörumerkjadeilu við Iceland Foods. Deilan snerist um réttinn til notkunar á heitinu Iceland og lauk með niðurstöðu sem talin var Íslandi í hag. Málið vakti alþjóðlega athygli og undirstrikaði mikilvægi þess að standa vörð um landaheitið Ísland/Iceland sem hluta af ímynd landsins og verðmætasköpun íslensks útflutnings.
Aðilar að samkomulaginu telja að aukið samstarf og samræmd viðbrögð muni styrkja stöðu Íslands á alþjóðavettvangi og stuðla að því að vernda þau verðmæti sem felast í landaheitinu fyrir íslenskt samfélag og atvinnulíf.
Efla vernd Íslands
„Það er Íslandi mjög mikilvægt að við verndum áfram okkar dýrmæta landaheiti sem Ísland er og tryggjum að það sé ekki misnotað. Ég fagna því að aðilar sameinist nú um að byggja áfram á þeirri góðu vinnu sem þegar hefur verið unnin á þessu sviði. Ég er þess fullviss að samstarf atvinnulífs og stjórnvalda muni efla enn frekar vernd og vöktun landaheitisins Ísland og þar með hagsmuni íslensks atvinnulífs.“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.
„Orðspor Íslands er afar dýrmætt fyrir útflutningsgreinarnar okkar og ekki síst fyrir skapandi greinar og menningartengdan útflutning. Við höfum staðið í töluverðri baráttu um rétt íslenskra fyrirtækja til að kenna sig við landið en slík upprunatenging er nú á tímum sérlega mikilvæg,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. „Okkar saga hefur verið öðrum þjóðum innblástur og því hefur Ísland verið leiðandi í umræðu um aukna vernd fyrir landaheiti innan alþjóðlega vörumerkjakerfisins. Það er því mikið gleðiefni að stjórnvöld og atvinnulíf taki nú höndum saman um að standa skipulega og markvisst að verndun og vöktun landaheitisins á alþjóðamarkaði.“

