1
Innlent

Lögregla boðar frekari upplýsingar eftir alvarlegt slys

2
Innlent

Helgi Seljan biðst afsökunar

3
Heimur

Kviknaði í konu í miðri fæðingu

4
Minning

Þrjú ungmenni létust í umferðarslysi á Krýsuvíkurvegi

5
Innlent

Allt á suðupunkti í Silfrinu

6
Innlent

„Svona fer sagan með menn sem svíkja sín prinsipp, kæri Stefán“

7
Peningar

Fyrirtæki Höllu forseta greiðir út tugi milljóna í arð

8
Peningar

Nítján á Skaganum með fulla vasa fjár

9
Innlent

Prestamálin í Kópavogi leyst

10
Innlent

Hin látnu á Krýsuvíkurvegi voru fædd á árunum 2005 til 2009

Til baka

YouTube-stjarnan tjáir sig meira um meint kynþáttaníð Sigga Bond

„Það sem hann var að segja var galið, í alvöru talað, algjörlega galið“

Siggi Bond 2
Sigurður Bond SnorrasonMeð honum er Kristján Óli Sigurðsson
Mynd: Skjáskot/Jakey Davies

Enska YouTube-stjarnan Morgan Lee Burtwistle, betur þekktur sem AngryGinge, lenti í orðaskaki við Sigurð Gísla Bond Snorrason, fótboltasérfræðing Dr. Football og fyrrum knattspyrnumann, á leik Englands og Gana í L-riðli heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu sem fram fór í Foxborough á þriðjudag.

Burtwistle sakaði Sigurð Gísla um kynþáttaníð í garð leikmanna Gana og tilkynnti atvikið til öryggisgæslu á leikvanginum. Hann krafðist þess að Íslendingnum yrði vísað af svæðinu en samkvæmt honum fékk Sigurður aðeins aðvörun og var heimilt að vera áfram á leiknum en þó virðist hann ekki hafa fengið að snúa aftur í sama sæti ef marka má Burtwistle.

Í myndskeiði sem Burtwistle birti á TikTok sést Sigurður biðjast afsökunar á ummælum sínum.

„Ég biðst afsökunar á ummælum mínum um leikmenn Gana. Þetta kemur ekki fyrir aftur, getum við ekki gleymt þessu?“ sagði hann.

Burtwistle sagði ummælin óásættanleg og lagði áherslu á að fordómar ættu ekki heima í knattspyrnu. Sigurður er staddur í Bandaríkjunum í boði veðmálafyrirtækisins Coolbet ásamt hópi Íslendinga að sögn Morgunblaðsins.

Burtwistle ákvað að tjá sig meira um málið í nýju myndbandi. Endurtók hann að ýmsu leyti sem hann sagði í fyrra myndbandi sínu en tók fram að hann hefði fengið fjölda skilaboða þar sem honum hafi verið sagt að um íslenskan mann væri að ræða og sá væri fyrrverandi knattspyrnumaður. Í myndbandinu segir Burtwistle að hann og fjórir vinir hans hafi allir heyrt í Sigurði svo það fari ekkert á milli mála að það hafi verið hann.

„Það sem hann var að segja var galið, í alvöru talað, algjörlega galið,“ segir Burtwistle meðal annars í nýja myndbandinu.

Mannlíf sendi Sigurði fyrirspurn um málið í morgun en hann hefur ekki svarað henni.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lágafellskirkja boðar til minningarstundar
Minning

Lágafellskirkja boðar til minningarstundar

„Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“
Innlent

„Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“

„Hvernig dílar maður við gamla freka karla?“
Fólk

„Hvernig dílar maður við gamla freka karla?“

Íslenskt tölvuleikjafyrirtæki heldur áfram að leka peningum
Peningar

Íslenskt tölvuleikjafyrirtæki heldur áfram að leka peningum

Einn látinn og tveir lögreglumenn særðir í skotárás í Hollandi
Heimur

Einn látinn og tveir lögreglumenn særðir í skotárás í Hollandi

Hin látnu á Krýsuvíkurvegi voru fædd á árunum 2005 til 2009
Innlent

Hin látnu á Krýsuvíkurvegi voru fædd á árunum 2005 til 2009

Risastór verðmunur á dagvöru
Peningar

Risastór verðmunur á dagvöru

Sér vaxandi ógn við tjáningarfrelsið
Innlent

Sér vaxandi ógn við tjáningarfrelsið

Stálu 100 kílóum af kjúklingi úr flutningabíl á ferð
Myndband
Heimur

Stálu 100 kílóum af kjúklingi úr flutningabíl á ferð

Alvarleg staða á fjölmiðlamarkaði
Innlent

Alvarleg staða á fjölmiðlamarkaði

Lögregla skaut konu til bana eftir hnífaárás á Times Square
Heimur

Lögregla skaut konu til bana eftir hnífaárás á Times Square

Rún aðstoðar Þorgerði Katrínu
Pólitík

Rún aðstoðar Þorgerði Katrínu

Sport

Félagsskipti Alberts sögð líkleg
Sport

Félagsskipti Alberts sögð líkleg

Skiptir mögulega í stórlið
Tveir íslenskir golfvellir eru á meðal þeirra bestu í heimi
Sport

Tveir íslenskir golfvellir eru á meðal þeirra bestu í heimi

Eigandi 49ers sakaður um vændiskaup
Sport

Eigandi 49ers sakaður um vændiskaup

Bjuggu til sögusagnir í kringum veikindi Jóns
Sport

Bjuggu til sögusagnir í kringum veikindi Jóns

„Þú hefur verið kletturinn minn á erfiðum tímum“
Sport

„Þú hefur verið kletturinn minn á erfiðum tímum“

Loka auglýsingu