Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Hvar liggur Samspillingin?“

Björn Birgisson skýtur föstum skotum á hægrimenn

Alþingishúsið
Alþing­is­húsið Sitt sýn­ist hverjum um póli­tík­ina Mynd: Víkingur

Björn Birgisson, samfélags­rýnir frá Grindavík, fjallar í nýrri færslu á Facebook um notkun heitisins „Samspillingin“ sem sumir gagn­rýnendur beita yfir Samfylkinguna. Hann segir að ef horft sé til kosninga­úrslita og þróunar stuðnings flokkanna á undan­förnum árum sé ástæða til að spyrja hvort gagn­rýninni sé réttilega beint.

Í færslunni bendir Björn á að við alþingis­kosningarnar árið 2021 hafi Sjálfstæðis­flokkur og Framsóknar­flokkur, sem hann nefnir „gömlu helminga­skipta­flokkana“, fengið samanlagt um 82.700 atkvæði, á meðan Samfylkingin fékk um 19.000 atkvæði.

Hann bendir á að í kosningunum 2024 hafi staðan snúist við; ríkis­stjórnin hafi fallið, Samfylkingin tekið forystu í stjórnar­myndun og nú, ári síðar, mælist flokkurinn lang­stærstur á landinu samkvæmt skoðana­könnunum.

Björn segir að fylgi Framsóknar­flokks og Sjálfstæðis­flokks hafi á sama tíma hrunið um meira en 35.000 atkvæði samanlagt og að flokkarnir hafi aldrei áður mælst með jafnlítið fylgi, hvorki hvor um sig né samanlagt. Á sama tíma hafi Samfylkingin farið úr 19.000 atkvæðum í um 44.000.

„Hvar liggur Samspillingin?“ spyr Björn og vekur athygli á því að kjósendur virðist vera að refsa ákveðnum flokkum fyrir „taumlausa spillingu og sérhagsmuna­gæslu árum saman“. Hann hvetur til þess að umræðan sé heiðarleg og byggð á stað­reyndum, fremur en uppnefnum eða klisjum.

Björn lýsir notkun heitisins „Samspillingin“ sem „aulalegri“ og segir að það sé tilraun til að dreifa athyglinni frá raun­verulegum vanda­málum stjórn­málanna. „Samspillingin stendur föstum rótum hjá helminga­skipta­flokkunum. Hvergi annars staðar,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi bið ríkisstjórnarinnar með hagræðingu. Kristrún Frostadóttir segir tillögur væntanlegar á næstu dögum.
  • „Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygginga­félögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum