Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Eyrúnu Guðbjörnsdóttur, 70 ára. Hún er um 160 sm á hæð, grannvaxin, klædd í dökka 66° úlpu og líklega með prjónahúfu. Síðast er vitað um ferðir Eyrúnar í Jörfabakka í Breiðholti í Reykjavík síðdegis í gær, eða um fjögurleytið. Eyrún, sem notar gleraugu, er með alzheimer.
Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Eyrúnar, eða vita hvar hana er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.
Fréttin hefur verið uppfærð: Eyrun er fundin, heil á höldnu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir