Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Hagsmunir Íslands í EES-samstarfinu í brennidepli á fundum utanríkisráðherra í Brussel

Þórdís Kolbrún ásamt Maros Šefčovič, varaforseta framkvæmdastjórnar ESB sem fer m.a. með málefni EES-samningsins.
Þórdís Kolbrún ásamt Maros Šefčovič, vara­for­seta fram­kvæmda­stjórnar ESB sem fer m.a. með mál­efni EES-samn­ings­ins.

„Aðild Íslands að EES-samningnum hefur fært Íslendingum ótvíræðan ávinning á undan­förnum áratugum. Aðgangur okkar að 450 milljóna markaðs­svæði er ákaflega mikil­vægur, en við það bætist marg­víslegt annað samstarf sem Íslendingar og aðrir íbúar á EES svæðinu njóta góðs af. Það er auðvitað mikilvægt að eiga góð og uppbyggileg samskipti milli samnings­aðila og ég verð vör við velvilja í garð EES samstarfsins hjá þeim sem ég hef hitt. Á fundum mínum hef ég lagt mikla áherslu á toll­frelsi í viðskiptum með sjávar­fang og lagði einnig áherslu á þýðingu þess að efla virkt samráð um utan­ríkis­pólitísk málefni, til dæmis á sviði alþjóðlegra þvingunar­aðgerða. Við höfum nú þegar fundið fyrir auknum skilningi á þessu sjónar­miði,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir, utan­ríkis­ráðherra á vef utan­ríkis­ráðuneytisins.

Samstarf á vettvangi EES, viðskiptamál og pólitískt samráð um alþjóðamál voru meðal umræðu­efna á fundum Þórdísar Kolbrúnar með fulltrúum framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins (ESB) í vikunni.

Þórdís Kolbrún fundaði með Maros Šefčovič, vara­forseta framkvæmda­stjórnar ESB sem fer m.a. með málefni EES-samningsins. Auk framkvæmdar samningsins var sérstak­lega rætt um áhrif mikil­vægra stefnu­mála á borð við Græna sátt­málann og Stafræna starfs­skrá ESB á innri markaðinn og sameiginleg markmið Íslands og ESB. Auk þess var farið yfir undir­búning viðræðna um nýtt samnings­tímabil Uppbyggingar­sjóðs EES. Í því sambandi tók ráðherra sérstak­lega upp málefni sem snúa að fríverslun með sjávar­afurðir og endur­skoðun samnings um viðskipti með landbúnaðar­afurðir. Ótryggt ástand í öryggis­málum í Evrópu bar einnig á góma og lagði ráðherra áherslu á mikilvægi samráðs við Ísland og hin EFTA-ríkin í EES  þegar kæmi að aðgerðum eins og viðskipta­legum þvingunar­aðgerðum.

Utan­ríkis­ráðherra fundaði svo með Valdis Dombrovskis, framkvæmda­stjóra viðskipta­mála. Á fundinum var rættu þau um viðskipti Íslands og ESB og hugmyndir Íslands um endur­skoðun á núverandi viðskipta­umhverfi, einkum fyrir sjávarafurði, þar sem vikið var að endur­skoðun samningsins um viðskipti með landbúnaðar­vörur.

„Að undan­förnu höfum við sótt á um bættan aðgang fyrir sjávar­afurðir inn á Evrópu, bæði til að bregðast við breyttum þörfum markaðarins en einnig til að tryggja okkur í samkeppni gagnvart öðrum þjóðum. Ég ítrekaði afstöðu okkar um að tímabært sé að hefja alvarlegar viðræður um fulla fríverslun með sjávar­afurðir jafnframt því að leysa þyrfti úr þeim atriðum sem tengjast viðskiptum með landbúnaðar­vörur“, sagði Þórdís Kolbrún.

Einnig átti ráðherra fund með framkvæmda­stjóra land­búnaðarmála, Janusz Wojciechowski, þar sem rætt var um stöðu og framkvæmd gildandi samnings Íslands og ESB um viðskipti með landbúnaðar­vörur og endur­skoðun hans.

Þórdís Kolbrún skoð­aði EFTA-húsið, hér er hún með Andra Lúth­ers­syni, aðstoð­ar­frkv­stj. EFTA.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Í grein fyrir breska lesendur lýsir Kristjana Guðbrandsdóttir því hvernig hún nýtur vetrarins í Reykjavík án þess að treysta alfarið á húshitun.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki