Séra Pétur Ragnhildarson hefur verið ráðinn prestur við Lindaprestakall í Kópavogi og Halldór Elías Guðmundsson í stöðu djákna við Austfjarðaprestakall en Þjóðkirkjan greinir frá þessu.
Pétur er fæddur árið 1993 og lauk BA-prófi í guðfræði árið 2017 og embættisprófi í guðfræði tveimur árum síðar. Árið 2021 lauk hann MA-prófi í guðfræði og hefur auk þess lokið diplómanámi í sálgæslu og námskeiði í sáttamiðlun.
Pétur hefur mikla reynslu af barna- og unglingastarfi innan kirkjunnar og var vígður til prestsþjónustu árið 2020. Hann starfaði meðal annars í Fella- og Hólakirkju og Guðríðarkirkju áður en hann var skipaður prestur í Breiðholtsprestakalli árið 2022. Pétur er giftur Alexöndru Ýr Auðunsdóttur og eiga þau tvo syni.
Halldór Elías er fæddur árið 1973 og lauk BA-gráðu í guðfræði árið 1997. Hann var vígður til djáknaþjónustu sama ár og hefur starfað að kristilegu barna- og unglingastarfi í meira en 35 ár.
Halldór hefur meðal annars starfað á Íslandi og í Bandaríkjunum og var vígður til prestsþjónustu hjá United Church of Christ árið 2021. Eiginkona hans er Dr. Jenný Brynjarsdóttir og eiga þau tvö uppkomin börn.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir