Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ozzy tekur upp síðustu plötuna: „Þar til í gær, var ég nokkur veginn sestur í helgan stein“

Það er bara einn Ozzy Osbourne
Það er bara einn Ozzy Osbourne

Rokk­goðsögnin Ozzy Osbourne er byrjaður að vinna í nýrri plötu og vill fara einu sinni í viðbót í tónleika­ferð.

Ozzy, 74 ára, sagði frá því í nýju viðtali við Metal Hammer að hann væri byrjaður að vinna í nýrri plötu sem eigi að koma út snemma árs 2024.

„Ég hef gert tvær plötur nokkuð nýlega, en ég vil gera eina plötu í viðbót og fara svo aftur á tónleika­ferð,“ sagði fyrr­verandi söngvari Black Sabbath. „Ég er bara að byrja á henni núna, en við byrjum að taka upp snemma á næsta ári,“ bætti hann við. „Ég vil taka minn tíma í þessa!“

Hinn goðsagna­kenndi rokk­söngvari hefur átt við alvarlega heilsu­bresti að stríða um nokkurt skeið en hann sagði nýlega að aðgerð sem hann fór í fyrr í þessum mánuði, þar sem lagaður var mænuskaði sem hann varð fyrir eftir að hafa fallið á nætur­brölti árið 2019, væri hans síðasta. „Á morgun, fer ég í síðustu aðgerðina á hálsinum,“ sagði hann á sínum tíma. „Og það verður síðasta aðgerðin sem ég fer í, því ég get ekki meir. Óháð hvernig þetta fer á morgun, þá get ég þetta ekki lengur. Ég get þetta ekki.“

Í Metal Hammer-viðtalinu sem birtist á þriðjudaginn, sagðist Osbourne „líða allt í lagi.“ Hann hélt áfram: „Ég hélt að ég yrði kominn aftur á fætur fyrir mánuðum síðan, ég gat bara ekki vanist að lifa svona, hafandi alltaf eitthvað að mér. Ég get ekki gengið almennilega ennþá, en ég er ekki þjáður eins og áður og aðgerðin á mænunni gekk frábærlega.“

Í júlí aflýsti Osbourne komu sína á Power Trip tónlistar­hátíðina en þar hefði hann komið fram með risum á borð við Metallica, AC/DC, Guns N´Roses og fleirum.

Hann náði þó að koma fram tvisvar sinnum á síðasta ári, í Birmingham og í Los Angeles en í bæði skiptin söng hann aðeins eitt eða tvö lög og þurfti hann að styðja sig við eitthvað til að standa. Í viðtali við Rolling Stone sagði hann frá því hversu mikið framkoma hans á tónleikunum hafi kveikt í honum. „Þar til í gær, var ég nokkur veginn sestur í helgan stein,“ sagði hann. „Í þrjú ár hugsaði ég „Ég mun aldrei fara aftur á svið“. Ég hálf­partinn sannfærði sjálfan mig um að ferli mínum væri lokið.“ En hann sagði að upplifunin á tónleikunum hafi verið svo mikið sæla að hann gæti ekki beðið eftir að fara aftur á svið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.
Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Stefnir í rólegt stuð

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027