Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Hvernig er hægt að gera leigumarkaðinn öruggari?

Leigu­markaðurinn á Íslandi er óstöðugur og hefur hækkað hratt á undan­förnum árum. Hvaða ástæður liggja að baki því og hvernig getum við bætt hann að mati sérfræðinga?

Konráð S. Guð­jóns­son.

Stefna íslenskra stjórn­valda um að betra sé að eiga en að leigja íbúð virðist hafa leitt til óöryggis og sveiflna á leigu­markaði. Þrír hagfræðingar hafa lagt fram tillögur sínar til að sporna við þessum sveiflum, en allar eru þær eru ólíkar í eðli sínu. Gætu þessar breytingar raun­verulega leitt til stærri og öruggari leigu­markaðar á Íslandi?

Lágtekju­fólk greiddi á Íslandi að jafnaði helming ráðstöfunar­tekna sinna í leigu árið 2016, meira en á öllum hinum Norður­löndunum samkvæmt nýlegri skýrslu Íbúða­lánasjóðs. Hlutfall íbúa á leigu­markaði var einnig nokkuð lágt miðað við sömu löndin þrátt fyrir aukningu síðari ára, en árið 2016 var það einungis lægra í Noregi. Íslendingar virðast því leigja minna og búa við verri kost á leigu­markaði saman­borið við aðrar Norður­landaþjóðir.

Ólafur Mar­geirs­son.

Þessi staða hefur ekki gerst að sjálfu sér, að mati Konráðs S. Guðjóns­sonar, hagfræðings Viðskipta­ráðs. Samkvæmt honum hefur séreignar­stefnan sem rekin hefur verið af stjórn­völdum skapað hvata til þess að eiga frekar en að leigja húsnæði. Líkt og Konráð segir Ólafur Margeirsson hagfræðingur þá hugsun að Íslendingar „eigi að eiga“ húsnæði hafa leitt til meiri skuld­setningar, hærra fasteigna­verðs og óstöðug­leika á húsnæðis­markaði. Í erindi sem hann hélt á fundi á vegum stéttar­félagsins Eflingar á mánudag sagði hann að ein lausn á þessu vandamáli gæti verið sú að auka aðkomu langtíma­fjárfesta að leigu­markaðnum á Íslandi, þá einna helst með leigu­félögum sem lífeyris­sjóðirnir gætu átt og rekið.

Una Jóns­dóttir.

Una Jóns­dóttir hagfræðingur hjá Íbúða­lánasjóði tekur undir áhyggjur Konráðs og Ólafs um afleiðingar séreignar­stefnunnar. Una veltir því upp hvaða leiguverð gæti talist sann­gjarnt og eðlilegt. Þar sem húsnæði sé nauðsynja­vara og öruggt aðgengi að þeim séu skilgreind sem mann­réttindi samkvæmt Sameinuðu þjóðunum væru ríkis­afskipti óumflýjanleg.

Ítarleg frétta­skýring um leigu­markaðinn á Íslandi er að finna í nýjasta tölublaði Mannlífs. Nánar má lesa um málið á vef Kjarnans.

Texti / Jónas Atla Gunnarsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja