Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Beinskeyttur Brynjar: „Við höfum knúið fram miklu meiri launahækkanir en innistæða er fyrir“

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson segir að „stjórn­málin í vestrænum lýðræðis­ríkjum eru í sjálf­heldu. Kröfur um útgjöld hins opinbera eru fullkomlega stjórn­lausar og fæstar þessara þjóða eru sjálf­bærar lengur. Stjórn­málamenn hafa ekki kjark til að taka erfiðar og óvinsælar ákvarðanir sem allir vita samt að eru réttar og nauðsynlegar.“

Brynjar bætir við:

„Sumir halda að hægt sé að skatt­leggja sig út úr vandanum eða taka endalaust lán og láta komandi kynslóðir borga. Gott dæmi um þetta er tilraun ráðamanna í Frakk­landi í mörg ár að hækka lífeyris­aldur í 64 ár, sem þykir nú ekki mikið miðað við ævilíkur. Að óbreyttu er franskt samfélag ekki sjálfbært en samt er mikill meirihluti Frakka á móti þessum nauðsyn­legu breytingum. Hingað til hafa frönsk stjórn­völd ekki haft kjark til að framkvæma það óhjá­kvæmilega. Framtíðin er ekki björt hjá vinum okkar víðast hvar í Evrópu.“

Brynjar beinir því næst orðum sínum að okkur Íslendingum:

„Nú erum við, eins og aðrar vestrænar þjóðir, að glíma við verðbólgu. En við kennum öllu öðru um en sjálfum okkur. Við höfum knúið fram miklu meiri launa­hækkanir en innistæða er fyrir og aukin útgjöld hins opinbera um leið. Það kemur alltaf í bakið á okkur fyrr eða síðar. Við krefjumst að öll opinber þjónusta sé ókeypis og að allir útlendingar sem stíga hér niður fæti og lifa við bágari kjör í heima­landinu eigi hér rétt á fram­færslu í boði skatt­greiðenda svo lengi sem þeir kjósi og jafnvel teljum það til mann­réttinda.“

Hann færir í tal að „eyðslusemin er aldrei sem fyrr og því viðskipta­halli við útlönd. Ríkis­sjóður er auðvitað rekinn með halla við þessar aðstæður. Svo erum við ógurlega hissa á verðbólgu og hærri vöxtum og ráðumst á Seðla­bankastjóra Þótt við séum að mörgu leyti í betri stöðu en flest önnur ríki gengur þetta ekki mikið lengur.“

Brynjar hvetur að endingu íslenska þjóð til dáða með þessum orðum:

„Þjóðin þarf að fylkja sér um kjarkaða stjórn­málamenn en ekki sífellt hoppa á vagn lýðskrumara, sem virðast hafa yfirtekið stjórn­málin. Það er henni fyrir bestu til lengri tíma litið. Ef einhverjir halda að sósíalismi eða vinstri pólitík sé lausnin þá er það mikill miskilningur. Menn þurfi ekki annað en að kíkja í sögubækur til að átta sig á því eða fara yfir rekstur Reykja­víkurborgar síðasta áratuginn eða svo.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim