Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Aðalsteinn Leifsson skipaður ríkissáttasemjari

Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari
Aðal­steinn Leifsson rík­is­sátta­semj­ari

Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamála­ráðherra hefur í dag skipað Aðalstein Leifsson framkvæmda­stjóra hjá EFTA sem ríkis­sátta­semjara frá og með 1.apríl. Helga Jóns­dóttir settur ríkis­sátta­semjari mun gegna störfum fram til þess tíma.

Hæfastur umsækjenda

Þann 5. desember 2019 auglýsti félagsmála­ráðuneytið laust til umsóknar embætti ríkis­sátta­semjara og var umsóknar­frestur til og með 20. desember 2019. Alls bárust sex umsóknir um embættið en einn umsækjandi dró á síðari stigum umsókn sína til baka. Ráðgefandi nefnd var skipuð af félags- og barnamála­ráðherra þann 3. janúar 2020 til að meta hæfni umsækjenda um embætti ríkis­sátta­semjara.

Í auglýsingu frá félagsmála­ráðuneytinu, þar sem umrætt embætti var auglýst laust til umsóknar, kom meðal annars fram að ríkis­sátta­semjari starfi á grund­velli laga nr. 80/1938, um stéttar­félög og vinnu­deilur, með síðari breytingum. Jafnframt kom fram að ríkis­sátta­semjari annist sátta­störf í vinnu­deilum milli launa­fólks og félaga þess annars vegar og atvinnu­rekenda og félaga þeirra hins vegar. Því skuli þess gætt að afstaða ríkis­sátta­semjara sé slík að telja megi hann óvilhallan í málum launa­fólks og atvinnu­rekenda, sbr. 1. mgr. 20. gr. laga um stéttar­félög og vinnu­deilur. Þá kom fram í auglýsingunni að enn fremur væri lögð áhersla á forystu­hæfileika og hæfni í mannlegum samskiptum.

Nefndin skilaði umsögn sinni 27. janúar 2020 þar sem niður­staða nefndarinnar var að þrír umsækjendur væru jafnhæfir til að gegna embætti ríkis­sátta­semjara.

Það er mat félags- og barnamála­ráðherra að af þessum þremur einstaklingum uppfylli Aðalsteinn Leifsson best þær kröfur sem gerðar eru til þess sem skipaður verður í embættið. Eftir samráð við forsvars­menn samtaka aðila vinnu­markaðarins er það enn fremur niður­staða ráðherra að afstaða  Aðalsteins Leifs­sonar sé slík að telja verði hana óvilhalla í málum launa­fólks og atvinnu­rekenda enda hafi hann samhliða öðrum störfum, starfað sem aðstoðar­ríkis­sátta­semjari  frá því í byrjun árs 2019.

Með víðtæka þekkingu og reynslu í samningamálum

Aðalsteinn lauk MBA námi frá Edinburgh Business School / Herriot Watt University í október 2004. Auk þess hefur hann lokið MSc námi frá London School of Economics (LSE). Þá stundaði hann doktorsnám í samninga­tækni hjá Greneoble Ecole de Management samhliða vinnu á árunum 2016-2018. Frá því í janúar 2014 hefur Aðalsteinn leitt daglegan rekstur EFTA sem hefur starf­stöðvar í Genf, Brussel og Luxemburg og tæplega eitt hundrað starfs­menn en í því starfi hefur meðal annars reynt á verk­stjórn og forystu­hæfileika Aðalsteins, oft og tíðum við krefjandi aðstæður. Einnig hefur hann leitt skrif­stofu aðal­framkvæmda­stjóra EFTA. Samhliða starfi sínu hjá EFTA hefur Aðalsteinn starfað sem lektor við Háskólann í Reykjavík þar sem hann hefur meðal annars kennt samninga­tækni og lausn deilumála í MBA námi og í meistara­námi innan hinna ýmsu deilda skólans. Í framan­greindri kennslu, við ráðgjöf og í nýlegri bók sinni sem og samninga­viðræðum almennt hefur Aðalsteinn lagt áherslu á traust, heiðar­leika, opin samskipti og gagnkvæman ávinning. Þá hefur Aðalsteinn, eins og áður er nefnt,  starfað sem aðstoðar­ríkis­sátta­semjari frá því í byrjun árs 2019 vegna samninga á almennum vinnu­markaði og hefur hann veitt embættinu liðsinni og verið til ráðgjafar auk þess að sitja fundi með samnings­aðilum þar sem meðal annars hefur reynt á hæfni hans í mannlegum samskiptum.

Aðalsteinn hefur því víðtæka þekkingu og reynslu á samninga­málum en auk fræðilegrar þekkingar hefur hann reynslu af þátttöku í samninga­viðræðum, kennslu í samninga­tækni, ráðgjöf við samnings­aðila og aðstoð við deilu­aðila við að bæta samskipti en allt er þetta reynsla og þekking sem talin er mikilvæg þegar kemur að því að skipa í embætti ríkis­sátta­semjara.

Í ljósi framan­greinds er það mat félags- og barnamála­ráðherra að Aðalsteinn sé best til þess fallin, af þeim umsækjendum sem framan­greind nefnd taldi hæfasta til að gegna embætti ríkis­sátta­semjara, til að annast sátta­störf í vinnu­deilum milli launa­fólks og félaga þess annars vegar og atvinnu­rekenda og félaga þeirra hins vegar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim