Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Forsetafrúin Eliza Reid: „Ég er ennþá þessi venjulega kanadíska kona sem flutti hingað 2003″

Mynd / Facebook Eliza Reid
Mynd / Facebook Eliza Reid

Forseta­frúin Eliza Reid segir það mikilvægt fyrir Íslendinga að raddir þeirra sem hafa ekki fullkomið vald á tungu­málinu heyrist.

Hún segir að innflytjendur hafi margt að segja þó þeir tali ekki alveg kórrétta íslensku.

Eliza flutti hingað til Íslands fyrir tæplega tuttugu árum síðan, ásamt verðandi eigin­manni sínum, Guðna Th. Jóhannessyni.

Eliza, sem er kanadísk, kynntist Guðna í sagn­fræðinámi í Oxford á Englandi; hún vann sem sjálfstætt starfandi blaða­maður, ritstjóri og rithöfundur eftir að hún kom til Íslands; hefur látið að sér kveða í umræðu um jafnréttis- og innflytjendamál.

Það urðu síðan miklar breytingar í lífi hennar og Guðna árið 2016, en þá var Guðni kjörinn forseti Íslands; endur­kjörinn 2020.

Eliza var því orðin maki þjóð­höfðingja.

Spegillinn ræddi við Elizu Reid um dvöl hennar og líf á Íslandi:

„Ég er enn þá þessi venjulega kanadíska kona sem flutti hingað 2003, og íslenska konan líka. Það er auðvitað skrítin tilfinning að vera allt í einu þjóðþekkt sem maki einhvers. Og það kannski einkennir mig sem einstakling fyrst og fremst þó að ég muni aldrei útskýra mig sjálfa þannig. En að sjálfsögðu er ég mjög stolt af því að vera maki hans Guðna. En þessi staða hefur alltaf verið mikil forréttindi, mikill heiður og mér finnst þetta svo skemmtilegt.“

Eliza bætir því við að „frá byrjun hefur mig alltaf langað til að gera eitthvert gagn. Ég er ekki manneskja sem vill brjóta reglur og fara mikið út fyrir þægindarammann. Jafnréttis­málin eru mér mjög kær, en ég hugsaði að ég gæti ekki talað um þau. Ég væri komin í þessa stöðu bara vegna þess að maðurinn minn var kjörinn í embætti. En svo hugsaði ég að maður veit aldrei í lífinu hvenær örlögin gefa þér tækifæri til að gera eitthvað. Og það er okkar að velja hvort við viljum gera eitthvað með þetta eða ekki. Við erum öll fyrir­myndir og við þurfum að velja hvort við viljum vera jákvæðar eða neikvæðar fyrir­myndir.“

Hún segist einfald­lega hafa ákveðið að „nýta röddina mína, röddina sem talar með hreim líka. Það er mjög mikilvægt á Íslandi að fólk heyri að þó maður geri einhverja vitleysu í tungu­málinu að þá hafi maður eitthvað mikilvægt að segja. Ég held og ég vona að ég hafi ekki breyst neitt sem einstaklingur þó að ég sinni nú því hlutverki að vera forsetafrú. En ég hef lært mikið, skemmt mér, hitt allskonar fólk og ef eitthvað er þá er ég bjartsýnni fyrir heiminn og Ísland eftir þau tækifæri sem ég hef fengið síðustu tæp sjö ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Vildi hitta nýja kærastann og beitti fyrrverandi ofbeldi
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er ekki síður menningarlegs eðlis“

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti