Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir að baráttan við Covid-19 sé ekki búin.
Hún segir einnig að sé von á nýjum heimsfaraldri sem að öllum líkindum verði inflúensa; Guðrún nefnir að það sé ekki spurning hvort heldur hvenær næsti heimsfaraldur gangi yfir:

„Við eigum alveg örugglega von á einhverju,“ segir Guðrún í þættinum Mannamál sem fer í loftið í kvöld á Hringbraut.
Í þættinum fer Guðrún yfir mögulega heimsfaraldra sem mannkynið þarf að kljást við á næstu árum; en vegna loftslagsbreytinga sem og hlýnunar jarðar sé möguleiki á að illvígar pestir sem herji á heitari lönd færi sig yfir til kaldari landa; má þar nefna smitsjúkdóma er fylgja moskító.
Þá megi allt eins búast við nýju af brigði af fuglaflensu, sem berst ekki bara úr dýrum í fólk, eins og gerist nú, heldur einnig á milli fólks. Segir Guðrún að slík afbrigði verði að taka mjög alvarlega; hún segir baráttuna við Covid-19 alls ekki að baki, enda greinast ennþá um 20 til 30 einstaklingar á dag.
En hvað er þá líklega að fara að gerast?
„Langlíklegastur er heimsfaraldur inflúensu,“ segir Guðrún og nefnir að líklega muni pestin fylgja mannkyninu um ókomin ár.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir