Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Vongóður þrátt fyrir tap upp á 6,5 milljarða: „Sjáum þróun er staðfestir að við erum á réttri leið“

Birgir Jónsson, forstjóri Play, lætur brátt af störfum.
Birgir Jónsson, for­stjóri Play, lætur brátt af störfum.

Ársuppgjör flug­félagsins Play var birt í dag og hljóðar heildartap flug­félagsins árið 2022 upp á 6,5 milljarða króna; velti flug­félagið 20 milljörðum króna í fyrra.

Afkoma félagsins var því neikvæð um 6,5 milljarða króna; tvöfaldast tapið á milli ára:

„Fjárhags­staða Play er heilbrigð og það sama má segja um lausafjár­stöðu fyrir­tækisins. Fyrir­tækið var enn rekið með tapi árið 2022 sem var viðbúið í ljósi þess að við erum sprota­fyrirtæki í miklum vexti að bæta við flugvélum, áfanga­stöðum og starfs­fólki auk þess sem við höfum verið að kynna nýtt vörumerki á markaði sem kostar bæði tíma og fjármuni.

Við sjáum hins vegar skýra og jákvæða þróun sem stað­festir að við erum á réttri leið og munum fljótlega sjá hagnað af fjár­festingunum eftir því sem við verðum sterkari á markaði,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play í tilkynningu frá flug­félaginu.

Nýverið var hlutafé félagsins aukið um 2,3 milljarða króna; er handbært sem og bundið fé Play nú 5,2 milljarðar króna.

Þrátt fyrir tapið eru forráða­menn Play bjartsýnir á komandi tíð:

„Það er gleðiefni að tilkynna auknar tekjur og sæta­nýtingu á fjórða ársfjórðungi 2022. Undan­farna mánuði höfum við náð betri sæta­nýtingu en flest önnur flugfélög sem við berum okkur saman við og á sama tíma mælist stundvísi okkar með því besta sem gerist í heiminum.

Flug­rekstur á ársfjórðungnum gekk sérlega vel en við flugum með um 250.000 farþega og meðal­sætanýting mældist 80,3%. Þessar tölur staðfesta að okkur er tekið fagnandi á markaði sem fyllir okkur öll stolti,“ sagði Birgir ennfremur í tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim