Flowerpot-borðlampinn, hannaður af hönnunargoðsögninni Verner Panton, fæst nú í smærri útgáfu, VP9. Lampinn hefur USB-snúru sem gerir að verkum að hann er hægt að hlaða en að öðru leyti er hann snúrulaus.

Flowerpot-lampinn var upphaflega hannaður árið 1969 fyrir danska hönnunarmerkið &Tradition. Lampinn er í anda sjöunda áratugarins og setur skemmtilegan svip á hvert rými.

VP9-lampinn er léttur og auðfæranlegur og kemur í nokkrum mismunandi litum. Fæst í Epal.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir