Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Segir Halldór Benjamín leika landsföður sem „elski þjóðina og Vilhjálm svo heitt“

Gunnar Smári fer mikinn í nýrri færslu á Facebook en þar agnúast hann út í Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífsins.

Sósíalista­foringinn skeleggi tjáir sig um viðtal Kastljóss við Halldór Benjamín í gærkvöldi þar sem hann ræddi um deilu SA við Eflingu og fyrir­hugað verkbann. Um þá útskýringu Halldórs um að hann væri bundinn trúnaði gagnvart þeim sem hann samdi við fyrir jól og gæti þess vegna ekki gefið neitt eftir gagnvart Eflingu, sagði Gunnar Smári að umorða þetta sem svo: „ Ég myndi gjarnan vilja hækka laun láglaunafólks í Eflingu en get það ekki vegna þessa að ég er bundinn af samkomu­lagi við forystu­menn annarra félaga.“

„Í Kastljósi í gær hélt Halldór Benjamín Þorbergsson því enn einu sinni fram að SA gæti ekki gengið að kröfum Eflingar vegna þess að hann væri bundinn trúnaði við þá sem hann hefði samið við fyrir jól, að hann gæti ekki horfst í augu við viðsemjendur sína síðan þá ef hann gæfi eitthvað eftir gagnvart Eflingu.

Merkinguna má umorða svona: Ég myndi gjarnan vilja hækka laun láglaunafólks í Eflingu en get það ekki vegna þessa að ég er bundinn af samkomu­lagi við forystu­menn annarra félaga,“ skrifaði Gunnar í byrjun færslunnar.

Því næst snýr hann oðrum sínum að Vilhjálmi Birgis­syni verkalýðs­foringja á Akranesi. Segir Gunnar Smári að Vilhjálmur hafi ráðist á sig í athuga­semdum fyrir tveimur dögum þegar sá fyrr­nefndi benti á þennan málflutning Halldórs Benjamíns í Facebook-færslu.

„Þegar ég benti enn og aftur á þennan málflutning Halldórs Benjamín fyrir tveimur dögum, áður en hann endurtók þetta í Kastljósi, réðst Vilhjálmur Birgisson á mig hér á veggnum með gífur­yrðum og skömmum. Í stað þess að tilkynna að Halldór Benjamín sé að ósekju að flytja ábyrgðinni á óbilgirni sinna samtaka yfir á Vilhjálm og fleiri forystu­menn verkalýðs­hreyfingarinnar, þá kaus Vilhjálmur að ráðast að mér og saka mig um guð má vita hvað ekki. Það má vel vera að Vilhjálmi finnist þetta snjallt og að honum hafi liðið betur á eftir. Halldór Benjamín er líka kátur með þetta, heldur áfram óáreittur að bera það út að hann geti ekki mætt kröfum Eflingar vegna þess að hann lofaði Vilhjálmi Birgis­syni að gera það ekki.“

Í lok færslunnar benti færslu­höfundur á hlekk á viðtal Kastljóss og segir Halldór vera í „upphöfnu hlutverki landsföðurs“ sem vilji setja á verkbann því hann „elski þjóðina og Vilhjálm svo heitt.“

„Hér má horfa á Halldór Benjamín halda þessu fram í Kastljósi gærkvöldsins, bera fyrir sig trúnað gagnvart forystu verkalýðs­hreyfingarinnar og þjóðinni allri, í þessu upphafna hlutverki landsföðurs sem hann hefur verið að leika síðustu mánuði. Halldór Benjamín segist enga aðra kosti hafa, svo hann bregðist ekki trúnaði við Vilhjálm og þjóðina, en að reka 21 þúsund láglauna­manneskjur heim og lama samfélagið. Hann gerir þetta ekki illum hvötum heldur vegna þess að hannÞetta er okkur boðið upp á dag eftir dag, kvölds og morgna, í öllum miðlum.“

https://www.ruv.is/…/samtok-atvinnulifsins-kjosa-um…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim