Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Dularfullt mannshvarf varð er Thomas Bjerco strandaði við Ísland – Þorði ekki að fara frá borði

Thomas Bjerco
Thomas Bjerco Mynd: Shipspotting.com

Í mars­mánuði árið 1973 strandaði hið danska flutninga­skip Thomas Bjerco á Eyja­fjallasandi. Tókst að koma allri áhöfninni, sem taldi 11 manns frá borði að undan­skildum einum, honum John Albech Adelund, sem þorði ekki frá borði. Var því ákveðið að koma öllum nema honum, fyrsta vélstjóra og skip­stjóranum frá borði og sækja síðustu þrjá síðar. Þegar sækja átti þremenninganna fannst John Albech ekki.

Tíminn sagði svo frá strandinu:

Dular­fullt manns­hvarf við Eyja­fjallasand: DANSKT SKIP STRANDAÐI. EINN SKIPVERJA TÝNDUR

Reykjavík. Á föstudags­kvöldið um klukkan níu strandaði danska flutninga­skipið, Thomas Bjerco frá Árósum, á Eyja­fjallasandi fyrir vestan Holtsós. Var skipið í leigu­flutningum á vegum Hafskips og var það á leið til Reykja­víkur með um 500 lestir af vörum, mest japanska bíla. Björgunar­sveitir frá Vestur-Landeyjum og Hvols­velli fóru þegar til aðstoðar og skip lónuðu fyrir utan strand­staðinn. Áhöfn skipsins var 11 menn, og var ákveðið skömmu eftir strandið, að senda 9 þeirra í land í gúmmbáti. Þegar til kom þorði einn skipverja ekki að fara í bátinn, en nokkur kvika var þá við skipshlið. Fékk þá maður þessi leyfi til að vera eftir um borð ásamt skip­stjóranum og 1. vélstjóra. Þegar þessir tveir menn ætluðu að yfirgefa skipið fannst maðurinn hvergi, þrátt fyrir víðtæka leit þeirra um borð.

Við náðum í gærmorgun tali af séra Halldóri Gunnars­syni, sóknar­presti að Holti undir Eyja­fjöllum, en hann var á strand­staðnum alla nóttina. Sagði hann okkur, að búið væri að fara aftur út í skipið og leita að þessum manni, sem er fertugur Kaupmanna­hafnarbúi, en hann hefði ekki fundizt þar. Einnig væri búið að ganga fjörur og leita þarna í næsta nágrenni, en allt hefði komið fyrir ekki. Væri hvarf þessa manns undarlegt í alla staði. Halldór sagði okkur, að þegar bátnum með mönnunum 8 um borð var ýtt frá skipinu, hefði þetta litið illa út í fyrstu, því að báturinn sogaðist út og var mesta mildi, að ekki fór verr en á horfðist í fyrstu. Halldór sagði, að veður á strand­staðnum væri gott. Margt manna hefði verið á staðnum í morgun. Þar á meðal væri menn frá Björgun, og væru þeir að kanna aðstæður til að bjarga skipinu eða bílunum úr þvi. Stórt gat er komið á síðuna sjávarmegin, en skipið liggur þarna flatt fyrir á rifi í um það bil 150 til 200 metra frá landi. Skipbrots­mönnunum líður öllum vel, en þeim hefur verið komið fyrir á bæjum þarna í nágrenninu.

Lík Johns Albech, fannst 1. apríl sama ár á söndunum vestan við Dyrhólaey. John var 45 ára að aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram