Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Jón Sigurður fjallar um Melínu Merkúrí í þætti kvöldsins: Endurfæðist þegar Bretar skila marmaranum

Melína Merkúrí
Melína Merkúrí

Einsog fram hefur komið í fréttum virðast viðræður komnar á rekspöl milli yfirmanna Breska Þjóð­minja­safnsins, British Museum, og grískra yfirvalda varðandi marmara­skúlptúra þá sem Bretar tóku ófrjálsri hendi á Akrapólishæðinni í Aþenu fyrir rúmum tvö hundruð árum. Grikkir hafa verið ötulir við að núa beiðni sinni um nasir Breta um að endur­heimta minjar sínar en líklegast hefur engin gengið jafn hart fram í þeirri baráttu og Melína Merkúri en hún var menningar­mála­ráðherra Grikkja nánast allan tíunda áratug síðustu aldar og svo aftur árið 1993 og til dauðadags, ári seinna. Þekktust er hún þó fyrir feril sinn sem leikkona en hún lék til að mynda í myndinni Aldrei á sunnu­dögum, þar sem hún fór með hlutverk grískrar gleðikonu, og þar söng hún lagið Börnin frá Pírea sem einnig náði heims­frægð. Málefni skúlptúr­anna, sem áður prýddu Parþenonhofið og aðrar byggingar á Akrapólís­hæðinni, var svo mikilvægt í hennar huga að hún sagði að ef hún myndi ekki upplifa þá stund, er Bretar skiluðu þeim, myndi hún endur­fæðast til að lifa þá dýrðar­stund. Ef til vill er sú stund að renna upp. Allavega hljóta margir að hugsa til hennar nú og þess framlags sem hún reiddi af hendi.

Deilan hófst árið 1801 þegar breskur jarl, Thomas Bruce að nafni, lét flytja marmara­skúlptúrana og kvaðst þá hafa til þess pappíra uppá vasann frá yfir­völdum sem þá voru Ottomansveldið. Eftir að deilan komst í hámæli var gerð ítarlega leit í tyrkneskum skjala­söfnum en leyfis­veitingin, sem hann kvaðst hafa haft árritaða undir höndum, hefur aldrei komist í leitirnar. Flutningurinn gekk heldur betur brösug­lega en skipið sökk við strendur grísku eyjunnar Kerkíra og tók það um þrjú ár að ná gersemunum upp úr djúpunum. Bresk yfirvöld keyptu þær svo árið 1816 og var kaup­verðið langt undir þeim kostnaði sem jarlinn þurfti að reiða fram til að koma þeim til Bretlands. 

Málið varð strax umdeilt og sá er barðist hve harðast gegn þessu á sínum tíma var skáldið Lord Byron en hann taldi þetta hrein og bein skemmdar­verk. Melína var ekki síðri baráttu­manneskja í sinni ráðherratíð og vakti það heims­athygli þegar hún króaði David Wilson, þjóð­minjavörð Breta, af á ráðstefnu í Lundúnum og spurði hann hiksta­laust, frammi fyrir fjölda fjölmiðla­fólks, hvenær hann hygðist skila Elgin mararanum, einsog skúlptúrar þessir eru oftast nefndir. Síðan var tekist á og þótti þeim siðprúðustu óljúft að sjá þetta háttsetta fólk takast á einsog smákrakkar á skóla­velli.

Lord Byron

Oft hafa átt sér stað þreifingar og síðast bauðst UNESCO, Menningar­mála­stofnun Sameinuðu þjóðanna, til að miðla málum en yfirmenn Breska Þjóð­minja­safnsins voru ekki sáttir við það enda telja þeir stofnunina draga taum Grikkja.

Þess má geta að minjar þessar eru verk sjálfs Feidíasar en hann er oftast nefndur merkasti mynd­höggvari fornaldar.   

Í þættinum Rúntað með Rucio fjallar Jón Sigurður um merkis­konuna Melínu Merkúri og kemur þar meðal annars inná deilu hennar við David Wilson. Þátturinn mun birtast upp úr klukkan 19:00 hér á mannlif.is. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis