Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Nágrannar björguðu einbýlishúsi frá eldsvoða: „Það þarf ekki meira en garðslöngu og slökkvitæki“

Betur fór en á horfðist.
Betur fór en á horfð­ist. Mynd: Brunavarnir Árnessýslu

Snarræði nágranna bjargaði einbýlis­húsi frá stórbruna. Annar nágranni vakti sofandi íbúann og kom honum út.

Sunnlenska segir frá því að í fyrradag hafi íbúi á neðri hæð tveggja hæða einbýlis­húss við Þelamörk í Hvera­gerði, bjargast út eftir að eldur kom upp á svölum hússins. Fjöl­skyldan á efri hæðinni var að heiman.

Friðrik Sigurbjörnsson, sem býr í næstu götu, varð var við eldinn um klukkan 7 um morguninn. Hringdi hann í Neyðar­línu og þaut svo af stað og vakti íbúann á neðri hæðinni með banki.

„Ég held að ég hafi aldrei barið jafn fast á dyr og rúður og þennan morguninn enda stressaður yfir því að fimm manna fjöl­skyldan á efri hæðinni væri heima. Allir voru auðvitað í miklu sjokki í morgun, en sem betur fer fór þetta betur en á horfðist þó að einhverjar skemmdir hafi orðið á húsinu,“ sagði Friðrik í samtali við Sunnlenska.

Aðrir nágrannar, sem vöknuðu við brothljóð og hvelli frá eldinum, tóku sig til og drógu fram garðs­löngu og slökkvitæki og náðu að halda eldinum í skefjum þar til slökkviliðið mætti á staðinn.

„Þau björguðu þessu bara, það er alveg óhætt að segja það. Eldurinn var á svölunum en það var snarræði nágrannanna að þakka að hann barst ekki inn í húsið,“ sagði Lárus Kristinn Guðmundsson, vara­slökkviliðs­stjóri Bruna­varna Árnes­sýslu, í samtali við sunnlenska.is. „Það þarf ekki meira en garðs­löngu og slökkvitæki til þess að gera gagn, þannig að þegar við komum á vettvang gekk slökkvistarfið hratt fyrir sig. Reyk­kafarar fóru inn í íbúðina til þess að við værum full­vissir um að það væri enginn heima og við þurftum síðan að opna þakið til þess að sjá hvort þar leyndist glóð,“ bætti Lárus við.

Fram kemur í fréttinni að slökkviliðs­menn frá Hvera­gerði hafi unnið að slökkvistarfinu ásamt einni vakt frá Selfossi en notast var við dælubíl og stigabíl, en auk slökkviliðsins var lögreglan og sjúkra­flutninga­menn kallaðir á vettvang.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp