Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Innlent

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

„Bad Boy“ Charlie í taílenskri auglýsingu – Myndband

Charlie eldist einstaklega vel.
Charlie eld­ist ein­stak­lega vel. Mynd: Instagram-skjáskot

Íslensk-banda­ríski leik­ar­inn, áhættu­leik­ar­inn og fram­leið­and­inn Charles Róbert Onken er áber­andi í nýlegri taí­lenskri aug­lýs­ingu.

„Bad Boy“ Charlie er nafn sem margir kann­ast við eða að minnsta kosti þeir sem voru upp á sitt besta á síð­ustu öld. Charles Róbert Onken var ansi áber­andi í fjöl­miðlum á Íslandi á síð­asta ára­tug 20. ald­ar­innar en hann var aðal­lega þekktur fyrir að vera einn fyrsti karl­kyns stripp­ar­inn á Íslandi. Þá lék hann í einu ljós­bláu mynd­inni sem fram­leidd var fyrir íslenskt sjón­varp, Leynd­ar­dómar skýrslu­mála­stofn­unar. En svo hvarf Charlie af sjón­ar­svið­inu um tíma. Árið 2019 skaut hann aftur upp koll­inum þegar DV sagði frá því að hann væri nú fluttur til Bangkok í Taílandi þar sem hann elti draum­inn sinn um frægð og frama.

Og það virð­ist hafa gengið nokkuð vel hjá Charlie okkar en 2020 lék hann í ind­verska stríðs­þætt­inum The For­gotten War og brátt kemur út kín­versk-taí­lenska myndin Double Acton 2, þar sem hann leikur mafíu­for­ingja. Mannlífi barst svo rétt í þessu ábend­ing um að Charlie hefði verið áber­andi í nýlegri taí­lenskri aug­lýs­ingu. Skartar hann þar ansi virðu­legu hvítu alskeggi og klæð­ist í fínum jakka­fötum. Leikur hann for­stjóra fyr­ir­tækis sem mætir á fund en inn­koma hans er ekki eins glæsi­leg og við var að búast. Hægt er að sjá aug­lýs­ing­una skemmti­legu hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Nikulás sást síðast á þriðjudag. Hann var þá með bláan bakpoka og klæddur í grænan sumarjakka.
Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027