Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Draugur við Hornbjarg og tannlæknir í fjöru

Útsýni af Kálfatindi á Hornbjargi. Séð yfir Hornvík. Mynd: Pétur Ásgeirsson,
Útsýni af Kálfatindi á Horn­bjargi. Séð yfir Hornvík. Mynd: Pétur Ásgeirs­son,

Einangraðasti staður á Íslandi er væntanlega Horn­bjargsviti við Látravík. Þangað kemur varla mannvera á tíma­bilinu frá ágúst­mánuði og fram í júní, þegar vaskur hópur frá Ferða­félagi Íslands mætir til að opna skála félagsins. Um tveggja mánaða skeið er ys og þys á þessum eyðis­lóðum þegar ferðamenn streyma þangað til að njóta útivistar við ysta haf og upplifa tíma sem einu sinni var.

Í dag er enginn vita­vörður á Horn­bjargi. Skála­verðir Ferða­félagsins greiða götu gesta og gangandi. Fólk gistir í gamla vitavarðar­húsinu og sumir fá sér lands­frægar fiskibollur Halldórs Hafdal Halldórs­sonar sem veiðir fiskinn, verkar og býr til bollurnar. Í næsta nágrenni við húsið skottast refir um, óhræddir við manneskjur. Það er enda bannað að drepa refi í frið­landinu.

Horn­bjargsviti. Ferða­fé­lag Íslands heldur úti gisti­þjón­ustu á sumrin.

Horn­bjargsviti á sér langa sögu og sumpart heillandi sögu frá mannlífi sem var þar um áratuga­skeið. Þjóðsagna­persónur á borð við Óla komma, Óskar Aðalstein og Jóhann vitavörð hafa markað sín spor á þessum slóðum; sumir lengur en aðrir. Eitt sumarið kom upp dular­fullt atvik. Óli var á staðnum ásamt konu sinni þegar þau sáu göngumann koma aðvífandi. Hann gekk að vélar­húsinu við hlið íbúðar­húss vita­varðanna og staldraði þar við. Óli ætlaði að heilsa upp á hann, en þá brá svo við að gesturinn gekk hratt í burtu og hélt upp Axar­fjallið. Kona Óla spurði hvort hann kannaðist eitthvað við manninn, en hann sagði svo ekki vera. „Hann er ekki þessa heims,“ sagði hann. Konan spurði þá hvernig hann vissi það. Óli sagði það vera einfalt. Það fylgdi honum enginn skuggi.

Vitavörður með tannpínu

Ótal sögur eru til frá tímum vita­varðanna. Horn­bjargsviti var lengst af eina byggða bólið á öllum Horn­ströndum. Þeir dagar komu að einungis fuglinum fljúgandi var fært á þessar slóðir sem á vetrum eru gjarnan rammaðar inn af hafís og stálgráum fjöllum. Það er auðvelt að lifa sig inn í það þrekvirki þegar Jóhann vita­vörður fór upp á Axarfjall með talstöð til að leiðbeina skipum fyrir Horn í gegnum hafísinn.

Grein­ar­höf­undur á leið í Látravík.

Það komst í fjölmiðla þegar Óli vita­vörður fékk tannpínu. Þá var mönnum vandi á höndum. Vita­vörðurinn mátti ekki yfirgefa vaktina þótt varðskip gæti sótt hann og komið honum undir læknis­hendur. Lausnin varð endanum eins og með Múhamed og fjallið. Afráðið var að tann­læknir frá Ísafirði kæmi með varð­skipinu til Látra­víkur.

Horn­bjarg.

Þeir sem til þekkja vita að það getur verið erfitt að lenda í fjörunni undir vitanum. Þegar varð­skipið kom siglandi með tann­lækninn var á mörkunum að hægt væri að lenda. Það var því gert neyðar­plan. Óli vita­vörður varð að vera í fjörunni og helst með opinn munn. Gúmmbáturinn sætti lagi og lenti í fjörunni. Tann­læknirinn stökk upp í fjöru með þau tól sem þurfti. Á örskots­stundu dró hann skemmdu tönnina úr vita­verðinum og stökk aftur um borð í gúmmbátinn sem hélt þegar frá landi.

Flestir þeir sem heimsækja Horn­bjargsvita ganga sem leið liggur til Hornvíkur til að njóta þeirrar svimandi fegurðar sem þar er að finna. Algengt er að fara beint upp frá vitanum og um Kýrskarð. Sú leið er flestum fær. Hinn mögu­leikinn er að ganga með brúnum Horn­bjargs, með fram Dögunar­felli, um Almenninga og koma niður að Horn­bæjunum. Þeir sem þora koma við á Kálfa­tindi, hæsta punkti Horn­bjargs. Sú ganga er ekki fyrir loft­hrædda.

Það verður enginn svikinn af því að heimsækja Horn­bjargsvita. Í skálanum er að finna mikið bókasafn með fróðleik um staðinn og svæðið allt. Þegar vindur og regn berja á húsunum er notalegt að hjúfra sig niður með bók í hönd og kynna sér sögu þessa dásamlega og hrikalega staðar andstæðnanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim