Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Eingreiðsla til öryrkja samþykkt á Alþingi í dag: Mun ekki leiða til skerðingar á öðrum greiðslum

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir.

Í dag samþykkti Alþingi að greiða öryrkjum- og endur­hæfingar­lífeyrisþegum 60 þúsund krónur núna í desember; á eingreiðslan ekki að leiða til skerðingar á öðrum greiðslum.

Upphaf­lega áttu örorku- og endur­hæfingar­lífeyris­þegar að fá sem nemur 28 þúsund krónum í eingreiðslu í desember; samkvæmt frumvarpi til fjár­aukalaga.

Árið 2021 voru greiddar út 53 þúsund krónur.

Inga Sæland.

Stjórnar­andstöðu þingmenn gagnrýndu þetta mikið og formaður Flokks fólksins, Inga Sæland, lagði fram breytingar­tillögu þess efnis að upphæðin yrði hækkuð upp í 60 þúsund krónur.

Þingmaður VG og formaður fjár­laganefndar Alþingis, Bjarkey Olsen Gunnars­dóttir, sagði í umræðum um málið nýverið að stjórnar­meirihlutinn yrði að gera betur.

Meirihluti fjár­laga­nefndarinnar lagði síðan til að upphæðin yrði hækkuð upp í 60 þúsund krónur.

Var eingreiðslan samþykkt með 58 atkvæðum; fimm þingmenn voru fjar­verandi í atkvæða­greiðslunni í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis