Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Harmleikurinn á Suðurgötu: Sigurður myrti eiginkonu sína og börnin þrjú með eitri

Þann 26 febrúar árið 1953 gerðist sá hryllilegi atburður í Reykjavík, að lyfja­fræðingurinn Sigurður Magnússon, myrti konu sína og börn þeirra þrjú og tók svo sitt eigið líf með eitri. Tengda­móðir hans sem kom að þeim öllum látnum.

Alþýðu­blaðið fjallaði um málið á sínum tíma en hafði eftir­farandi lýsingu eftir þáverandi saka­dómara eins og það hét þá; „Í Suðurgötu 2 hér í bæ bjó Sigurður Magnússon, lyfja­fræðingur, kona hans, Hulda Karen, börn þeirra 3 á aldrinum 3-6 og Ásdís, systir konunnar. Ásdís fór til vinnu sinnar kl. um 9 í morgun og var húsfreyjan þá komin á fætur og börnin að klæða sig. Þegar móðir húsfreyjunnar, sem heima á í Ytri-Njarðvík, kom í húsið kl. 12.40, var öll fjöl­skyldan, hjónin og börnin, dáin.“

Skyldi eftir bréf

Lögreglan og læknar mættu fljótlega á staðinn og fundu á náttborði Sigurðar „glas, merkt: Eitur og bréf hafði hann látið eftir sig til Ásdísar þar sem hann skýrir frá því að hann, sem undan­farið hefur verið meira og minna sjúkur, hafi í örvilnan náð í eitur sem hann hafi gefið þeim öllum og verði þau dáin þegar verður að þeim komið. Kveðst hann ekki geta skilið konuna og börnin eftir.“

Segir ennfremur í Alþýðu­blaðinu daginn eftir atburðinn, að líkin hafi legið hlið við hlið í hjóna­herberginu en öll klædd, þegar móðir konunnar kom að þeim. Var talið ljóst að þau hefðu öll dáið fljótlega eftir inntöku eitursins. Ekki var vitað hvers­konar eitur Sigurður hafði notað.

Hafði glímt við veikindi

Sigurður, sem lést tæplega 35 ára, hafði greinst með heila­bólgu ári fyrir voða­verkin og verið frá vinnu en var þó farinn að vinna aftur við Reykja­víkurapótek. Daginn sem hann drap alla fjöl­skylduna var hann í fríi en hann hafði kvartað undan verkjum í höfði undan­farna daga. Konan, Hulda Karen Larsen var 32 ára, Magnús var 6 ára, Sigríður var 4 ára og Ingibjörg 3 ára.

Hulda Karen
Magnús
Sigríður Dúa
Ingi­björg Stefanía

Reimleikar í Dillonshúsi

Í fræðslu­horni Bænda­blaðsins má sjá stutta greiningu á húsum í Reykjavík sem þekkt eru fyrir reimleika. Þar kemur fram að Suðurgata 2, sem oftast er kallað Dillonshús og hýsti Sigurð og fjöl­skyldu þegar þau dóu, sé eitt þeirra. Húsið var á sínum tíma flutt á Árbæjar­safnið og hafa starfs­menn þar kvartað undan reim­leikum sem þau hafa orðið vör við og skyldi kannski engan undra ef þar svífi um sálir þessarar ólánsömu fjöl­skyldu.

Baksýnis­spegill þessi birtist fyrst á vef Mannlífs þann 10. september árið 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er ekki síður menningarlegs eðlis“
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri