„Ég er bara drulluslegin eftir þetta,“ segir Margrét Kristjánsdóttir í samtali við Mannlíf en hálfóður maður á fjórhjóli keyrði næstum yfir tvo sjö mánaða hvolpa hennar á Hólmsheiði í gær. Maðurinn lét ekki þar við sitja heldur veitist einnig að henni þegar hún var að taka hann upp á myndband. Það myndband má sjá hér fyrir neðan.
Margrét birtir myndbandið á Facebook og lýsir atvikinu. „Þessi fáviti reyndi að keyra á hundana mína og annan hvolp á Hólmsheiðinni. Manneskja sem var með mér steig fyrir hjólið og bauð honum að keyra frekar á sig en hundana. Hann gat ekki beðið eftir því að við gætum sett taumana á hundana, heldur flautaði og keyrði áfram. Fávitinn æsti sig mjög og heimtaði nafnið á manneskjunni, sem hún gaf fúslega og þá byrjaði ég að taka hann upp,“ skrifar Margrét.
Líkt og sjá má í myndbandinu, þá tók ökumaðurinn þessu illa. „Eins og sést þá stígur fávitinn af hjólinu, ógnar mér og rífur af mér símann og grýtir í jörðina. Okkur var öllum brugðið og ég kallaði til lögreglu, sem var fljót á staðinn. Við náðum númerinu á hjólinu en ef einhver þekkir þennan fávita má sá hinn sami senda mér skilaboð. Þessu má deila að vild,“ skrifar Margrét í gær.
Í samtali við Mannlíf segist hún enn í áfalli eftir lætin á Hólmsheiði í gær. Göngufélagi hennar óttast að maðurinn muni hrella hana á ný, í ljós þess hve ólmur hann var að fá persónuupplýsingar hennar. Margrét segist hafa fengið þónokkur viðbrögð við færslunni. Í það minnsta tveir segjast hafa lent í þessum sama manni á Hólmsheiði. Aðrir hafa velt því upp hvort maðurinn sé einnig að keyra ólöglega utanvegar. Margrét segist vona að lögreglan taki málið föstum tökum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir