Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Risastór heilsulind World Class í Njarðvík í startholunum: „Ég er fimm mínútur á flugvöllinn“

Reiknað er með að heilsulind Björns og meðeigenda hans í Njarðvík komist í gagnið eftir þrjú ár.
Reiknað er með að heilsu­lind Björns og með­eig­enda hans í Njarðvík kom­ist í gagnið eftir þrjú ár.

„Við erum að klára endanlegan samning og stefnum að undir­skrift í næstu viku,“ segir Björn Leifsson, eigandi World Class, í samtali við Mannlíf.  Hann vísar þarna til risa­verkefnis World Class sem er að hefjast á næstunni. Um er að ræða World Class stöð, baðlón og heilsu­hótel. Þess utan verður sjóbaðs­aðstaða með gufu og heitum pottum á svæðinu sem er við sjóinn í grennd við Fitjar í Reykja­nesbæ. Björn reiknar með að opna nýju heilsu­lindina, sem stendur við 2400 fermetra baðlón eftir þrjú ár að óbreyttu. byggingarnar verða um 8400 fermetrar.

Teikning gaf vænt­an­legri bygg­ingu World Class í Njarðvík.

„Við ákváðum að staðsetja okkur miðsvæðis í Reykja­nesbæ þaðan sem er örstutt á flug­völlinn. Ég er fimm mínútur að aka á flug­völlinn,“ segir Björn.

Við erum með góða eig­in­fjár­stöðu

Víst er að hin nýja heilsustöð er að róa á svipuð mið og Bláa lónið í Grindavík. Þangað tekur um hálftíma að aka frá Leifsstöð.

Sem dæmi um stærð framkvæmdarinnar þá er áætlað að kostnaðurinn verði 10 milljarðar króna. Björn segist ekki óttast kostnaðinn. Áhættan sé lítil.

„Við erum með góða eiginfjár­stöðu og ráðum vel við verkefnið,“ segir hann.

Fyrir Reykjanes og þá sérstak­lega Njarðvík og Keflavík mun nýja heilsu­hótelið hafa gríðar­lega mikla þýðingu. Björn segir að um 100 manns fái vinnu við starfsemina. Þá er ekki búið að taka inn í reikninginn þau umsvif sem verða á framkvæmda­tímanum. Hann á von á því að Íslendingar sæki í nýja lónið ekki síður en erlendir ferðamenn.

„Við erum með um 50 þúsund félaga í World Class. Þeir verða með aðgang að nýju stöðinni okkar og sjóð­böðunum,“ segir Björn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim