Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Minnist Önnu Guðnýjar með hlýhug: „Dásamlegur félagi og heimskona – Hjartans þakkir fyrir allt“

Bergþór Pálsson.
Bergþór Pálsson.

Hinn frábæri söngvari, Bergþór Pálsson, ritar afar falleg minningarorð um Önnu Guðnýju Guðmunds­dóttur píanó­leikara, sem er látin, aðeins 64 ára að aldri, eftir erfiða baráttu við veikindi.

Fjöldi fólks hefur minnst Önnu á samfélags­miðlum; þar á meðal margir af fremsta tónlistar­fólki landsins; en Anna Guðný var lengi vel einn fremsti píanó­leikari Íslands.

Anna Guðný Guð­munds­dóttir.

Bergþór á ekkert nema fallegar minningar um Önnu Guðnýju, og einkennast skrif hans af hjarta­hlýju og virðingu – sem kemur ekki á óvart, enda er Bergþór heiðurs­maður með mikla og sterka nærveru sem einkennist af lífsgleði og mann­kærleika.

Bergþór segir að Anna Guðný hafi verið „hógvær, traust og vönduð manneskja í hvívetna. Fyrirmynd í vinnu­brögðum og listfengi, dásam­legur félagi og heimskona.“

Hann segir einnig að „hún gat mörgum fremur fram­kallað hina eftir­sóttu flauels­áferð í píanóleik, hvort sem var í mjúku draum­lyndi eða ofsahraða. Það var eins og hún gæti ekki slegið feilnótu. Hún vissi að til þess þurfti að vinna botnlaust og það vílaði hún ekki fyrir sér.“

Bergþór segir að allir sem hafi kynnst Önnu Guðnýju hafi nú misst mikið:

„En mest auðvitað fjöl­skyldan sem hún sinnti af þeirri alúð sem einkenndi allt hennar líf. Þeim sendi ég innilegar samúðar­kveðjur. Hjartans þakkir fyrir allt, elsku Anna Guðný.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“