Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sigríður nýtir allan mat:„Baka úr mjólkurvörum sem eru að renna út á tíma“

Sigríður Ingvarsdóttir. Mynd úr einkasafni.
Sigríður Ingv­ars­dóttir. Mynd úr einka­safni.

Neytandi vikunnar er Sigríður Ingvars­dóttir, bæjar­stjóri Fjalla­byggðar og ritstjóri Húsfreyjunnar. Sigríður var áður forstjóri Nýsköpunar­miðstöðvar Íslands. Hún er gift Daníel Gunnars­syni, lyfja­fræðingi hjá Vistor. Samtals eiga þau sex börn og ellefu barnabörn, sem sagt alvöru ríkidæmi. Sigríður býr á Siglu­firði og býr við þann góða kost, að eigin sögn, að þar er ein besta fiskbúð landsins og einstak­lega gott bakarí.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég er dugleg að kaupa það sem er á tilboði hverju sinni. Eins kaupi ég 10 kílóa fiskiöskjur í Fiskbúð Fjalla­byggðar, með sjófrystum þorsk­flökum. En við í fjöl­skyldunni erum mjög mikið fyrir fisk. En helsti sparnaðurinn hjá mér varðandi mat felst í því að henda aldrei mat og nýta alla afganga. Mér finnst skelfilegt að hugsa til allrar þeirrar matar­sóunar sem á sér stað, hér á landi og annars staðar, því þetta þarf alls ekkert að vera svona. Það er hægt að nýta afganga á svo marg­víslegan hátt og gera girnilega rétti úr þeim. Til dæmis ef rjómi er að renna út á tíma hjá mér, þá frysti ég hann. Alltaf gott að eiga rjóma í frysti til dæmis til að bæta út í súpur og sósur. Ef mjólkur­vörur eru að renna út á tíma hjá mér þá baka ég úr þeim. Ef ég er með alla fjöl­skylduna í mat og það er mikill afgangur, þá sendi ég liðið mitt heim með afganga.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já, ég endurnýti suma hluti. Ég nota t.d. gler­krukkur undir sultur og hlaup sem ég útbý. Eins nota ég gömul handklæði og visku­stykki í tuskur og bónklúta. Ég er markvisst farin að kaupa frekar vörur sem er ekki pakkað í miklar umbúðir. Til dæmis kaupi ég frekar ávexti og grænmeti sem er ekki hlaðið umbúðum.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég hef nota­gildið í huga. Ég kaupi ekki bara eitthvað, heldur það sem virkilega er að nýtast. Þegar gjafakaup eru annars vegar erum við hjónin meðvituð um að reyna að kaupa gjafir sem viðkomandi þarf á að halda. Við erum dugleg að hafa samband við börn og barnabörn og athuga hvort eitthvað vanti, s.s. fatnað í leik­skólann, eitthvað til heimilisins o.s.frv. Eins erum við dugleg að gefa góðar samveru­stundir eða upplifun, þ.e. eitthvað sem viðkomandi getur notið, í stað þess að gefa einhverja hluti.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Ég elska ferska ávexti og ber, ferskar krydd­jurtir og gott grænmeti. Því á ég mjög erfitt með að neita mér um að kaupa þessar vörur. Því má segja að ég bruðli svolítið þegar ég kem í ávaxta- og grænmetis­deildir í verslunum. En á móti kemur, að ég nýti allar þessar vörur upp til agna. Þetta eru hollar og góðar vörur og því finnst mér í lagi að gera vel mig og fjöl­skylduna á þessu sviði. Við kaup á þessum vörum reyni ég alltaf að kaupa frekar innlent, ef það er í boði, heldur en innflutt.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Umhverfismál skipta mig miklu máli og sem betur fer er almenningur farinn að veita umhverfis­málum mun meiri athygli en áður. Við eigum að hafa áherslur
hringrásar­hagkerfisins að leiðar­ljósi, þ.e. að draga úr óhóflegri neyslu, auka líftíma auðlinda jarðar og koma í veg fyrir að efni og hlutir hverfi úr hagkerfinu sem úrgangur.

Ég ákvað þegar ég flutti norður að nota bílinn minn sem allra minnst. Hér í Fjalla­byggð búum við við þau forréttindi að maður kemst fótgangandi á alla staði innan byggða­kjarnanna Ólafs­fjarðar og Siglu­fjarðar. Þegar maður leggur bílnum og fer allra sinna ferða gangandi, þá er það allt í senn; sparnaður varðandi eldsneytis­kaup, gott fyrir umhverfið, þar sem ekki er verið að menga, og síðast en ekki síst góð og ókeypis líkams­rækt, því ekki er hægt að byrja né enda vinnu­daginn á betri hátt en með hressandi gönguferð í öllum veðrum.

Bestu sparnaðarráð sem ég get gefið er að nota aldrei yfirdrátt og taka helst ekki lán og ALDREI að taka smálán. Auðvitað kemst fólk varla hjá því að taka húsnæðislán, en það er svo ofboðs­lega dýrt að skulda peninga. Því er besta sparnaðar­ráðið sem ég get gefið, að safna fyrir því sem á að kaupa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim