Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Segir frétt RÚV um Francescu Albanese „ekki boðlega“

„Þessi frétt er svo furðulega bagalega skrifuð og hún er svo gloppótt að það er beinlínis varhuga­vert, ef ekki hættulegt“

Auður Jónsdóttir
Auður Jóns­dóttir Auði blöskrar frétta­flutn­ingur RÚV Mynd: Wikipedia

Auður Jóns­dóttir, rithöfundur og blaðakona, gagnrýnir harðlega frétta­flutning RÚV um Francesca Albanese, sérstakan sendi­fulltrúa Sameinuðu þjóðirnar í málefnum Palestínu. Í fréttinni er fjallað um það að Albanese sæti ekki lengur þvingunar­aðgerðum Bandaríkja­stjórnar en hún hefur verið afar gagnrýnin á yfirvöld í Ísrael.

Í Facebook-færslu segir Auður fréttina vera „furðulega bagalega skrifaða“ og varar við því að fram­setning hennar geti ýtt undir upplýsinga­óreiðu.

„Þessi frétt er svo furðulega bagalega skrifuð og hún er svo gloppótt að það er beinlínis varhuga­vert, ef ekki hættulegt,“ skrifar Auður og heldur áfram.

„Í stuttri frétt um stórt og grafal­varlegt mál er tvívegis talað um meint gyðinga­hatur Albanese, sérstaks sendi­fulltrúa Sameinuðu þjóðanna í málefnum Palestínu – sem er algjör fjarstæða – og aðeins vitnaði í ummæli Marco Rubio um hana, þar sem hann ásakar hana um það og nefnt að það geri Ísrael líka,“ skrifar Auður bætir hún við: „Þetta er ekki boðlegt á ríkis­miðli.“

Hún segir jafnframt að fréttin skorti mikilvægt samhengi og að slíkur frétta­flutningur geti haft alvarlegar afleiðingar.

„Frétt í skrumskældu samhengi kyndir undir upplýsinga­óreiðu. Þetta er ekki boðlegt á ríkis­miðli,“ segir hún.

Auður bendir einnig á að bandarísk stjórn­völd hafi ekki fallið frá fyrir­ætlunum sínum gagnvart Albanese þrátt fyrir nýlegan dóms­úrskurð um afnám viðskipta­þvingana.

„Banda­ríkin neita því að afnám viðskipta­þvinganna gegn henni sé breyting á stefnu stjórn­valda. Utan­ríkis­ráðuneytið tilkynnti að þetta hefði einungis verið gert vegna dóms­úrskurðarins og bætti vi' „Ríkis­stjórnin hefur áfrýjað úrskurði dómstólsins,““ skrifar Auður.

Hún vitnar einnig í yfir­lýsingu bandaríska utan­ríkis­ráðuneytisins þar sem fram kemur að stjórn­völd hyggist setja Albanese aftur á lista yfir sérstak­lega tilnefnda ríkis­borgara ef úrskurðurinn verði felldur úr gildi eða honum frestað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim