Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Hættulegar breytingar á Suðurlandsvegi: „Á sekúndubroti tókst mér að stinga mér út af veginum“

Mynd/ waldorfskolinn.is Myndin er samsett
Mynd/ waldorfskolinn.is Myndin er sam­sett

Tilkoma nýs vegar við Lögbergs­brekku hefur legið þungt á skóla­samfélaginu í Waldorfskólanum í Lækjar­botnum. Nýr vegur var opnaður á föstu­daginn. Breytingin sem um ræðir hindrar vinstri beygju í átt til borgarinnar frá afleggjaranum að Lækjar­botnum. Skóla­yfirvöld og starfs­fólk skólans hefur kvartað yfir að yfirvöld hafi ekki formlega tilkynnt breytinguna. Þá sé breytingin illa merkt og minnstu mátti muna að um stórslys hafi orðið en að minnsta kosti sjö bílar tóku vinstri beygju á móti umferð.

Myndin sýnir nýja veg­inn í Lög­bergs­brekku Mynd/ skjá­skot vega­gerdin.is

Skítaredding

Forsvars­menn skólans kærðu skipulags­breytingu Kópa­vogsbæjar í vor og voru framkvæmdir stöðvaðar um tíma. Þá segir Dagný Helga Ísleifs­dóttir, starfs­maður og foreldri við Waldorfskólann í samtali við Mannlíf: „Gerður var hliðar­vegur sem einhver skíta­redding af því að það gleymdist að gera ráð fyrir aðgengi að skólanum þegar vegurinn var hannaður. Við erum að tala um skóla sem er búinn að vera stað­settur þarna á sama stað í rúm 30 ár! Það er ekki enn komið á hreint hverjir eiga að þjónusta þennan hliðarveg sem skólinn og íbúar svæðisins eiga að nota, ekki er heldur búið að malbika en það er samt búið að opna hann!“ 

Þá segir hún jafnframt að um helgina hafi ábúendur á svæðinu verið innlyksa þar sem hliðar­vegurinn hafi ekki verið ruddur og að ekki sé vitað hver eigi að þjónusta hann.

12 kíló­metrum lengri leið

Hin nýja breyting hefur í för með sér tólf kílómetra lengingu fyrir börn og starfs­fólk á leið til borgarinnar frá Lækjar­botnum. Bifreið­arnar þurfa nú að beygja til hægri upp Lögbergs­brekku og snúa bílum sínum á plani Litlu-Kaffi­stofunnar til að halda til borgarinnar.

Stórslysahætta

Minnstu mátti muna að um stórslys hafi orðið á föstu­daginn síðastliðinn þegar Björk Bjarna­dóttir, kennari og foreldri við skólann var á leið heim eftir daginn. Björk tók vinstri beygju frá afleggjaranum í átt að borginni en merkingar Vega­gerðarinnar voru illsjáanlegar í myrkrinu og veður­ofsanum sem gekk yfir landið. Hún deildi reynslu sinni í fésbókar­færslu:

„Eftir að hafa beygt frá Waldorfskólanum í Lækjar­botnum í áttina að Reykjavík í myrkrinu áðan áttaði ég mig allt í einu á því að ég var að keyra á móti umferð!. Á sekúndu­broti tókst mér að stinga mér út af veginum, niður í djúpa holu og aftur upp á veginn sem liggur til Reykja­víkur. Á sekúndu­brotinu hugsaði ég líka út í það að taka u beygju og botna bílinn upp brekkuna, en það var ekki hægt! Svo margir bílar að koma á móti mér. Sem sagt það var eitthvað skilti þarna sem sést ekki í myrkrinu en búið er að breyta veginum þannig að akreinin er tvöföld til Hvera­gerðis og skólinn á að taka annan veg sem ég hef aldrei séð! #Vega­gerðin og

#Kópa­vogsbær þið megið girða ykkur í brók og fara að koma fram við skólann og íbúa svæðisins af virðingu og með skilningi. Ég er enn með hjartað úti á kinn og veit ekki hvaða verndar andar vaka yfir mér, en þeim og mínum fljóta huga þakka ég lífs­björgina. Þarna hefði getað orði svo svakalegt slys…ég vil ekki hugsa það lengra. Ég hringdi svo í Lögregluna þar var mér tjáð að ég væri nr 2 sem hefði tilkynnt vandamál þarna! Nú skyldi hringt í Vega­gerðina og málinu reddað.“

Dagný Helga Ísleifs­dóttir, segir að lögreglu hafa verið tilkynnt um málið: „Lögreglan var ekki par sátt með þessi vinnu­brögð, en þetta er mjög lýsandi fyrir virðingar­leysið sem Kópa­vogsbær og Vega­gerðin hafa sýnt skólanum í skipulagningu og framkvæmd á þessum vegar­kafla. Við erum orðin lang­þreytt á þessu virðingar­leysi sem börnunum okkar er sýnt af hálfu Kópa­vogsbæjar og Vega­gerðarinnar.Við erum búin að vera að berjast fyrir því að það sé hlustað á okkur og að það sé tekið tillit til þess að þetta sé leikskóli, grunn­skóli og vinnu­staður fjölda fólks en við komumst ekki í gegn.“

Rúmlega 80 börn sækja grunn­skólann, 20 börn eru í leik­skólanum, kennarar og annað starfs­fólk telja um 30 manns, þar eru 3 kennara­bústaðir sem í búa um það bil 10 manns.

Svör Vegagerðarinnar

Mannlíf hafði samband við Vega­gerðina og ræddi við Gísla Gíslason verkefna­stjóra.

Honum hafði ekki borist til fregna um þau atvik sem áttu sér stað á föstu­daginn síðastliðinn og imprar á að öflugar merkingar hafi verið settar upp við vegamótin sem útskýrðu að vinstri beygja væri bönnuð. Aðspurður hvort samtal hafi ekki átt sér stað á milli lögreglu og Vega­gerðarinnar gat Gísli ekki svarað því og bendir á að þeir ökumenn sem lentu í vandræðum hafi ekki fylgt umferða­reglum. Hann segir að breytingarnar hafi verið gerðar eftir klukkan 15.30 á föstu­daginn, eftir samtal við skólann: „Við vorum beðnir um að gera það ekki fyrr því þá væru flestir farnir úr skólanum,“ og tekur jafnframt fram að hann viti ekki betur en að merkingarnar hafi verið komnar upp áður en opnunin hafi átt sér stað.

Inntur eftir því hvort gleymst hafi verið að gera ráð fyrir aðkomu að Lækjar­botnum svarar hann svo ekki vera en tvöföldun á Suður­landsvegi hafi verið gerð í þágu umferðar­öryggis og betra flæðis: „Við þessa tvöföldun var tekin af vinstri beygja frá Waldorfskóla til Reykja­víkur, til vesturs. Er sú beygja raun­verulega alveg stór­hættuleg beygja, þar sem menn þvera þarna tvær akreinar sem eru í austur,“ þá útskýrir hann aðstæður uppi á hábrekkunni svo að sjónlínur ökumanna séu mjög slæmar og þakka megi fyrir að ekki hafi orðið alvarleg slys á þessum tiltekna stað. „En við tökum af þessa beygju en samhliða byggjum við alveg sérstakan hliðarveg fyrir Waldorfsskóla. Hliðarveg sem liggur raun­verulega með Suður­lands­veginum að sunnan­verðu og ökumenn þar með farið að Waldorfskóla og frá,“. Hliðar­vegurinn tengist við Geirland sem er staðsett fyrir neðan Lögbergs­brekkuna. Þá útskýrir hann að vegurinn sé opinn þeim sem að skólann sæki en bendir jafnframt á að aðkoma frá Reykjavík sé óbreytt og að hægt sé að aka upp Lögbergs­brekkuna og taka hægri beygju. Gísli vill því meina að framkvæmdin hafi verið bót að aðgengi fyrir skólann.

Fyrsta áfanga framkvæmdarinnar er lokið en fólgst hann í að fara Suður­landsveginn frá Foss­völlum niður að Lögbergs­brekku og gera hliðar­veginn sem tengir Waldorfskólann við Geirland. Annar áfangi er í framkvæmdar­leyfisferli en fellst hann í að klára Geir­lands­vegamótin.

Aðspurður svarar Gísli að hliðar­vegurinn verði klæddur með bundnu slitlagi: „Okkur tókst ekki að klára það fyrir veturinn, en það verður gert um leið og veður leyfir,“.

Hver sér um að þjónusta veginn?

Samkvæmt Gísla er hliðar­vegurinn svokallaður héraðs­vegur sem þýðir að Vega­gerðin á veginn og viðhald því í höndum hennar, en að vetrar­þjónustan sé í höndum viðeigandi sveitar­félags eða land­eiganda sem er í þessu tilviki Kópa­vogsbær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis