Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Skotmaðurinn á Egilsstöðum áfrýjar til Hæstaréttar: Játaði flest brotin en neitar þeim alvarlegustu

Þórður Már Jónsson og Árnmar Jóhannes Guðmundsson
Þórður Már Jónsson og Árnmar Jóhannes Guð­munds­son Mynd: Gunnar Gunnarsson – Austurfrétt

Árnmar Guðmundsson ætlar að sækja um áfrýjun til Hæstaréttar en Lands­réttur staðfesti á föstu­daginn átta ára fangelsisdóm yfir honum fyrir skotárás á Egils­stöðum í ágúst 2021.

Árnmar var ákærður fyrir húsbrot, brot í nánu sambandi, brot gegn barna­verndar­lögum, brot gegn vald­stjórninni, hættubrot og eigna­spjöll, svo eitthvað sé nefnt en brotin voru fleiri.

Fram kemur í frétt Austur­fréttar að hann hafi játað á sig flest brotin en alvarlegustu atriðunum mótmælti hann. Var þar um að ræða tilraunir til manndrápa, annars vegar gegn húsráð­anda í Dalseli og hins vegar gegn lögreglu­mönnum sem mættu á vettvang en Ármar lenti í skot­bardaga við lögregluna sem endaði á því að hann var skotinn í kviðinn. 

Var Árnmar dæmdur í héraði í átta ára fangelsi og til að borga fyrrum sambýlis­konu sinni 750.000 krónur í miska­bætur og barns­föður hennar, húsráð­andanum í Dalseli, um 2.4 milljónir. Þá var honum gert að greiða tveimur sonum þeirra milljón krónur í miska­bætur. Lands­réttur staðfesti dóminn en hækkaði bæturnar til drengjanna um hálfa milljón til hvors. Kom fram í dóminum að dren­girnir hafi verið afar ótta­slegnir um líf sitt og föður síns, sérstak­lega eftir að þeir heyrðu skot­hvelli koma frá húsi sínu eftir að þeir höfðu náð að flýja út í skóg.

Þórður Már Jónsson, verjandi Árnmars, svaraði fyrir­spurn Austur­fréttar og sagði að verið sé að fara yfir dóminn en búið sé að ákveða að sækja um áfrýjunar­leyfi til Hæstaréttar. Samkvæmt lögum um Hæstarétt er áfrýjunar­leyfi gefið ef forsendur áfrýjunar snúi að atriðum sem hafi verulega almenna þýðingu eða af öðrum ástæðum sé mikilvægt að fá úrlaust Hæstaréttar um eða þá að dómur Lands­réttar sé verulega ábótavant eða hreinlega rangur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Vildi hitta nýja kærastann og beitti fyrrverandi ofbeldi
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er ekki síður menningarlegs eðlis“

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti