Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Stöð Sport 2 rukkar fyrir ekkert

Eins og kunnugt er hefur öllum íþróttaviðburðum
Eins og kunn­ugt er hefur öllum íþrótta­við­burðum

Íslenskar efnis­veitur ganga mislangt til að koma til móts við þarfir neytenda á tímum kóróna­veirunnar.

Vodafone greinir frá því á heimasíðu sinni að Stöð 2 muni bjóða öllum lands­mönnum opinn aðgang að Stöð 2 Krakkar, Stöð 2 Bíó og Stöð 3 frá 16. mars. Þá hefur verð á Stöð 2 Maraþon verið lækkað niður í tæpar þúsund krónur. Þegar kemur að Interneti hefur Vodafone tilkynnt að heima­tengingar verði með ótakmarkað gagnamagn.

Mannlíf hefur á hinn bóginn haft spurnir af óánægðum áskrifendum Stöðvar 2 Sport, sem er í eigu Sýnar eins og Vodafone. Eins og kunnugt er hefur öllum íþrótta­viðburðum, svo að segja um heim allan, verið aflýst næstu vikurnar. Engar beinar útsendingar af íþrótta­kappleikjum eru því á dagskrá stöðvarinnar, þótt einhverjir upprifjunar- og samantektar­þættir séu fram­leiddir í stórar eyðurnar. Sá sem segir upp stöðinni nú þarf að greiða fyrir áskrift út apríl, eða í sex vikur, án beinna útsendinga frá íþrótta­kappleikjum.

Áskrifanda sem Mannlíf ræddi við var boðið að kaupa Skemmtipakkann í staðinn. Stytting uppsagnar­frests eða „frysting“ áskriftar kom ekki til álita.

Annar áskrifandi sem Mannlíf ræddi við sagðist hafa fengið áskrift í apríl fellda niður. Fyrir­spurn Mannlífs vegna þessa hafði ekki verið svarað þegar þetta var skrifað.

Ótakmarkað gagnamagn

Síminn hefur tilkynnt að viðskipta­vinir búi að ótakmörkuðu gagna­magni meðan á þessum óvissu­tímum stendur. Ekki verður gjaldfært fyrir notkun umfram innifalið gagnamagn innanlands, að því er segir á heimasíðu Símans. Þar segir að fordæma­laust ástand sé í heiminum og að fjar­skipti séu nauðsynleg. „Við hjá Símanum viljum að viðskipta­vinir okkar hugsi frekar um eigin hag og heilsu, ættingja sína og vini frekar en innifalið gagnamagn og reikninga.“ Síminn rekur einnig íþróttastöð, Síminn sport. Þar eru sömuleiðis engar beinar útsendingar af kapp­leikjum þessa dagana. „Síminn tilkynnir á vef sínum að fyrir­tækið muni ekki gjaldfæra fyrir áskrift að síminn Sport frá og með 1. apríl og á meðan þetta ástand varir.“

Önnur fyrirtæki á fjarskipta­markaði hafa brugðist við vegna COVID-19. Nova sendi viðskipta­vinum sínum skilaboð 14. mars þar sem tilkynnt var að allir landsmenn fengju frían aðgang að Jibbí á Nova TV. „Það eru ansi margir heima fyrir og við viljum alls ekki að neinn verði uppi­skroppa með afþreyingar­efni.“ Jibbí býður upp á barnaefni.

Í helgar­blaðinu Mannlífi er farið yfir hvernig nokkur af stærstu fyrir­tækjum landsins á sviði fjar­skipta, heilsu­ræktar og afþreyingar­þjónustu hafa brugðist við þeirri stöðu sem uppi er í íslensku samfélagi vegna kóróna­veirunnar. Auk þess er farið yfir réttindi flug­farþega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra