Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Innlent

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Söngdívan Hera Björk – Fasteignasali og tveggja barna móðir

Hera Björk. Mynd / Hallur Karlsson
Hera Björk. Mynd / Hallur Karlsson

Hera Björk Þór­halls­dóttir fór með sigur úr bítum í Söngvakeppn­inni í ein­vígi sínu gegn palest­ínu­mann­inum Bashar Murad, í gærkveldi. Hera fór með flutn­ing af lag­inu Scared of heights. Ákvörðun verður tekin um þátt­töku í Eurovision í sam­ráði við Heru.

Hera Björk er dóttir söng­kon­unnar Hjör­dísar Geirs­dóttir og Þórhalls Geirs­sonar. Hera er ein af fjórum börnum þeirra. Systir Heru er Þórdís Lóa borg­ar­full­trúi. Bræður hennar eru þeir Geir Þór­halls­son, sjúkra­þjálf­ari og Gissur Þór­halls­son, tölv­un­ar­fræð­ingur.

Hera Björk er fædd í Reykja­vík 29. mars 1972 verður því 52ja ára síðar í mán­uð­inum. Hún á tvö börn, þau Þórdísi Petra Ólafs­dóttur og Viðar Kára. Hún ólst upp í Breið­holti og stund­aði nám í Öldusels­skóla og síðar Fjöl­braut í Breið­holti. Hún hóf söng­nám árið 1989 í Söng­skóla Reykja­víkur.

Hera Björk hóf söng­feril sinn á barns­aldri og 12 ára söng hún inn á barna­plöt­una, Göngum við í Kringum. Hún keppti í Hæfi­leika­keppni Suð­ur­lands árið 1988 og hafn­aði þar í fyrsta sæti með lagið „Perfect“. Seinna keppti Hera Björk í Söng­keppni fram­halds­skól­anna, með lagið „Án þín“, fyrir hönd Fjöl­braut­ar­skól­ans í Breið­holti og lenti í öðru sæti.

Hera hefur einnig búið og langt stund á söng­nám í Danmörku.

Reynsla Heru spannar vítt svið og hefur hún tekið þátt í fjölda söng­leikja, meðal ann­ars Rocky Horror, Evitu og Litlu Hryll­ings­búð­inni. Hún hefur starfað með hljóm­sveitum á borð við Orgil, Sweetý og 17 vélar. Hera Björk hefur gefið út fjölda platna.

Hera Björk býr í Reykja­vík og starfar sem fast­eigna­sali.

Söngvakeppni sjónvarpsins

Árið 2007 flutti Hera lagið Mig dreymdi eftir Óskar Guðnason og Ingólf Steins­son í Söngvakeppni Sjón­varps­ins.

Árið 2008 tók Hera Björk þátt í Grand Prix sem er danska und­ankeppn­inni fyrir Eurovision, og hafn­aði í öðru sæti. Þá flutti hún lagið Someday sem náði þó nokkru flugi.

Hera tók virkan þátt í flutn­ingi fram­laga Íslands í Eurovision í Serbíu 2008 og í Moskvu 2009, sem leið­bein­andi og bak­radda­söng­kona.

Árið 2010 tók Hera þátt fyrir hönd Íslands í Eurovision í Noregi, með lagið Je Ne Sais Quoi.

Eins og áður hefur komið fram fór Hera með sigur úr bítum í Söngvakeppni sjón­varps­ins með lagið Scared of heights í gærkveldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Nikulás sást síðast á þriðjudag. Hann var þá með bláan bakpoka og klæddur í grænan sumarjakka.
Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027