Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Vigdís Erla: „Ég festi mig ekki í rútínu og finnst gaman að breyta til og prófa nýja hluti“

Mannlíf heyrði í Vigdísi Erlu Rafns­dóttur sem er mikill matgæðingur og hefur í raun verið það síðan að hún man eftir sér, hún er Matgæðingur Mannlífs þessa vikuna.

„Litla ég, endaði oftar en ekki í eldhúsinu sem gestur starandi á matargerð heimilis­manna, enda get ég gleymt mér í youtube glápi ef ég dett inn á einhverja skemmtilega matarrás.“

„Ég á svo skemmtilega minningu frá því þegar ég fékk vinkonur mínar í heimsókn og við bjuggum til dumplings. Við tróðum okkur mörg saman við eldhús­borðið og dunduðum okkur við að pakka fillingunni inn í deig og bjuggum til geggjaða sósu til að dýfa í. Ég vildi að ég gæti deilt með ykkur þeirri uppskrift, en ég á hana því miður ekki til. Strákarnir mínir fengu að vera með og sá yngri var svo spenntur yfir matnum og var hann regluglega búinn að skella í sig hráum dumplings.“

Uppáhalds­rétturinn
Vigdís segir okkur frá því að hún eigi uppáhalds­rétti frá öllum heims­hornum: „en einhversstaðar hef ég lent í lukku­pottinn með vini en þeir eru algjörir meistara­kokkar. Matar­gerðin mín er oft lituð af þeirri þekkingu sem ég fæ frá vinum og fylgi ég sjaldnast uppskrift. Maturinn endar oft sem svona abstract listar­verk segir Vigdís og glottir.

Dren­girnir mín virðast hins vegar vera bara ósköp hamingju­samir með það sem ég dúndra fram á borðið og sætta sig við ótrúlegustu hluti, en ég hef líka fengið spurningu frá þeirra vinum af hverju maturinn væri svona skrítinn hjá ykkur?“ Barns­faðir minn er frá Ghana svo við eldum að jafnaði oft ganískan mat sem er virkilega gómsætur.

„Rétturinn sem poppar í hugann minn núna er hins vegar nauta­steik, bakaðar kartöflur og heima­tilbúin bernaise sósa. Ætli ég skelli ekki í þessa um helgina, ég er nefnilega að reyna að temja mér það að elda eftir uppskrift, allavega einu sinni í viku.“

Vigdís segir okkur glöð í bragði að hún sé miklu meiri bakari í sér en kokkur því þegar það kemur að bakstri þá gerast galdrarnir. „Ég er búin að mastera súrdeigs­brauð og geri það auðveldlega eftir tilfinningunni, svo er ilmurinn af nýbökuðu brauði svo dásam­legur.“

Annars er „týpískur dagur eins og að ganga í þoku því ég er sjaldnast með fyrirfram ákveðnar hugmyndir um hvað ég ætla að borða. Ég festi mig ekki í rútínu og finnst gaman að breyta til og prófa nýja hluti.“

Nautaribeye og bernaise

Fyrir 4-5

Nautaribeye

  • 3-4 nautaribeye steikur (fer eftir stærð og þykkt)
  • Smjör til steikingar
  • Salt, pipar og gott steikar­krydd
  • Hitið ofninn 160°C.
  • Bræðið smjör á pönnu og steikið hvora hlið á háum hita í um 1-2 mínútur (fer eftir þykkt) og kryddið báðar hliðar.
  • Færið steikurnar yfir í eldfast mót, hellið smjörinu af pönnunni yfir og eldið í ofni þar til kjarnhiti nær 48°C.
  • Takið steikurnar þá út úr og leggið álpappír þétt að þeim þar til kjarnhiti nær um 57-58°C (fyrir medium-rare steik).
  • Fjarlægið álpappírinn og ausið smjörinu úr botni fatsins yfir steikurnar og kryddið með örlitlu af steikar­kryddi í viðbót, hvílið kjötið í um 10  mínútur áður en það er skorið niður.

Bernaise sósa

  • 8 eggja­rauður
  • 500 g smjör
  • 2 msk. Bernaise essens
  • 1-2 msk. fljótandi nauta­kraftur
  • Pipar og salt eftir smekk
  • 3-4 msk. Estragon krydd
  • Bræðið smjörið í potti og leyfið því að kólna þar til það er ylvolgt (ef það er of heitt eru meiri líkur á að sósan skilji sig). Ef þið eruð í tímaþröng er gott að hella smjörinu úr pottinum í annað ílát til að það sé fljótara að kólna niður.
  • Þeytið á meðan eggja­rauðurnar þar til þær þykkjast og lýsast (um 5 mínútur).
  • Bætið þá smjörinu saman við í mjórri bunu og hrærið á meðan á lágum hraða.
  • Bætið restinni af hráefnunum saman við og þeytið stutta stund og berið strax fram.

Kramdar kartöflur með parmesan

  • Um 10 meðal­stórar kartöflur eða fleiri minni
  • Virgin ólífuolía
  • Gróft salt, pipar, söxuð steinselja
  • Parmesan ostur
  • Sjóðið kartöflurnar þar til þær mýkjast.
  • Leggið bökunar­pappír í ofnskúffu og hellið smá ólífuolíu yfir hann.
  • Raðið kart­öflunum því næst í skúffuna og kremjið þær lauslega niður með glasi/kartöflu­stappara.
  • Stráið aftur vel af ólífuolíu yfir ásamt grófu salti og pipar.
  • Rífið að lokum parmesan ost yfir og bakið í 200° heitum ofni í um 15 mínútur eða þar til kartöflurnar fara að gyllast og verða stökkar að utan.
  • Stráið þá smá saxaðri steinselju yfir (má sleppa).
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto