Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Kvika leitar á náðir stóra bróðurs: „Hringja viðvörunarbjöllum hjá almenningi“

Marinó G. Njálsson birti pistil í færslu á Facebook. Myndin er samsett
Marinó G. Njálsson birti pistil í færslu á Facebook. Myndin er sam­sett

Stjórn Kviku banka hefur óskað eftir við stjórn Íslands­banka að samruna­viðræður yrðu hafnar milli bankanna tveggja. Marinó G. Njálsson birti í kjölfarið pistil á samfélags­miðlinum Facebook. Hann spyr lesendur hvort þetta hringi viðvörunar­bjöllum. Marinó bendir á marga samnefnara þessarar bónar og þess sem átti sér stað fyrir hrun.„Lítill banki sem sérhæft hefur sig í að sinna efnaðri hluta lands­manna, leitar eftir samruna við banka að stórum hluta í ríkiseigu. Á þetta að hringja viðvörunar­bjöllum hjá almenningi?Kvika banki tók fyrir nokkrum árum yfir sjóði sem „gull­drengir“ eftir­hrunsár­anna (GAMMA) höfðu byggt upp og nánast sett í þrot. Einn sjóðanna fór úr því að vera verð­metinn á 4,4 milljarða kr. niður í 42 m.kr. á nokkrum mánuðum árið 2019. Ég velti fyrir mér þá, hvort meira væri af úldnu kjeti í kötlum GAMMA og hvort það væri sniðugt af Kviku banka að fara í þessa mjög svo sérstöku björgunar­aðgerð.Rétt um 3 árum og 4 mánuðum eftir yfirtöku sjóðanna leitar Kvika eftir skjóli hjá Íslands­banka.“Marinó telur fulla ástæðu til að hafa gætur á enda ekki ólíklegt að ólag sé í rekstri Kviku­banka fyrst þeir leyti á náðir stóra bróðurs. Hann rifjar einnig upp umræðinu sem átti sér stað fyrir hrun:„Fyrir hrun, þá mátti ekki ræða stöðu bankanna nema á jákvæðum nótum og þeir sem dirfðust að rjúfa þau helgu vé fengu yfir sig holskeflu þar sem þeir voru sakaðir um að trúa ekki á „snillingana“. Ég var svo sem ekkert sérlega gagn­rýninn á bankana á þeim tíma, en vissi þó að þeir væru illa undir­búnir fyrir áföll. Hafði unnið úttekt á stöðu áætlana um rekstrar­samfellu (e. business continuity planning) hjá einum þeirra og er óhætt að segja að niður­staðan var ekki nógu góð. Þetta var árið 2006 og það liðu tvö ár áður en bankanum fannst tilefni til að gera eitthvað í málunum og halda áfram með verkefnið.“

Upphrópaður vitleysingi

„Andrés Magnússon, læknir, kom svo til Egils í Silfrið snemma árs 2008 og viðraði áhyggjur sínar. Hann var úthrópaður sem vitleysingi, enda hvaða vit ætti læknir að hafa á rekstri banka. Hann reyndist bara hafa heilmikið fyrir sér. Danske bank sendi frá sér skýrslu árið 2006 og varaði við alvarlegri stöðu bankanna. Erlendur sérfræðingur skrifaði skýrslu og ráðherra í ríkis­stjórninni sagði hann þurfa að fara í endur­menntun. Og svo má ekki gleyma forstjóra Kaup­hallarinnar, sem sagði íslenska bankamenn snillinga og útlendingar ættu bara eftir að uppgötva leyndarmál þeirra,“ ritar Marinó og bætir við að hafa verið þess viss um  áhættuna sem fólst í yfirtöku bankans á sjóðum GAMMA árið 2019.„Hvort sú áhætta sé að koma í bakið á þeim núna eða viðskipta­líkan bankans, veit ég ekki, en Kvika banki væri fyrsti bankinn til að óska eftir samruna, þegar allt er í lukkunar velstandi. Almenningur, sem á um 43% í Íslands­banka, á því að hafa áhyggjur af þessari beiðni Kviku banka.“

Almenn­ingur, sem á um 43% í Íslands­banka, á því að hafa áhyggjur af þess­ari beiðni Kviku banka.“

Hugsanleg björgun Kviku

Marinó G. Njálsson vill ekki útloka gróða bankanna á hugsanlegum samruna en hann hafi þó á tilfinningunni að verið sé að reyna að bjarga Kviku frá falli:„Væri staða bankans svo frábær, þá ætti hann að eiga auðvelt með að leita eftir meira hlutafé frá eigendum sínum og þannig stinga sér í gegn um ölduna. Það er ekki eins og það sé skortur á fjármagni í umferð á Íslandi, þegar hagnaður skráðra fyrir­tækja á síðasta ári var 434 ma.kr. (samkvæmt upplýsingum sem Ragnar Þór Ingólfsson hefur tekið saman).“

Hvetur forstjórann til heiðar­leika

Marinó segist síður en svo óska eftir falli bankans en hvetur forstjóra Kviku banka til að tala hreint út um ástæðu viðræðnanna:„Ég vil hins vegar að hann nafni minn Tryggvason komi heiðar­lega fram og greini frá því hvers vegna í raun Kvika banki hefur falast eftir viðræðum við Íslands­banka um samruna. Báðir bankarnir eru skráðir á markað og ég kannast ekki við neinar slíkar afkomu­tilkynningar til Kaup­hallar að staða Kviku banka sé ekki nógu góð.Þegar GAMMA féll, þá var það byggingar­verkefni sem hratt öllu af stað. Hvaða sjóður Kviku banka er í vanda núna? Voru fleiri fúlegg í söfnunum sem bankinn tók yfir frá GAMMA eða tókst honum að verpa einu slíku sjálfur? Banki með mikinn metnað, eins og forráða­menn Kviku banka hafa ósjaldan talað um, fer ekki í samruna­viðræður með það að markmiði að hverfa af yfir­borðinu, nema staða hans sé MJÖG alvarleg og hann sér ekki fram á að geta bjargað sér sjálfur.Vona, að ég hafi rangt fyrir mér og allt sé eins og blómstrið eina hjá Kviku banka. Þar til að bankinn hefur lagt spilin á borðið, þá ætla ég samt að leyfa mér að gjalda beiðni bankans með varhug.“Hér að neðan má sjá færslu Marinós í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim