Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Dóttir stórstjörnu skildi nýfætt barn sitt eftir úti í skógi í frosti: „Hún var greind tveggja ára“

Dóttir bandarískrar hafnabolta­stjörnu situr undir kæru eftir að hún skildi nýfætt barn sitt eitt eftir úti í skógi í frosti.

Alexandra Eckersley var heimilis­laus þegar hún fæddi son sinn í skógi í New Hampshire á jóladag. Úti var frost en mikill kuldi hefur verið á þessum slóðum undan­farið. Hún bjó í einskonar tjaldi í skóginum.

Hin 26 ára Alexandra er ættleidd dóttir hafnabolta­leikarans Dennis Eckersley en hann náði miklum árangri í íþróttinni og spilaði lengst af með Boston Red Sox. Alexandra hefur glímt við andleg veikindi og urðu þau til þess að hún byrjaði að misnota fíkniefni, missti samband við fjöl­skyldu sína og varð heimilis­laus.

Dennis Eckersley

„Hún var greind með geðsjúk­dóma tveggja ára, sem versnuðu í gegnum árin. Hún var oft lögð inn á sjúkrahús og að lokum var hún lokuð inn á stofnun,“ sagði í yfir­lýsingu frá foreldrum Alexöndru.

Móðir hennar segir fjöl­skylduna hafi reynt að hjálpa henni í gegnum árin og koma henni í meðferð en hún neitaði þar til foreldrar hennar neyddust til að koma henni út af heimilinu. 

„Hún var alltaf velkomin heim aftur, með þeim skilyrðum að hún færi í meðferð, hún kaus að gera það ekki,“ sagði lögfræðingur sem kom að málinu.

Á jóladag fæddi hún sitt fyrsta barn. Hún viðurkenndi fyrir lögreglunni að hafa notað kannabis og kókaín á meðgöngunni en segist ekki hafa vitað að hún gengi með barn.

Eftir fæðinguna hafði Alexandra samband við lögregluna og óskaði eftir aðstoð. Þegar hún var síðan spurð út í barnið, laug hún um stað­setningu þess. Lögreglan leitaði í klukku­tíma eða þangað til Alexandra gaf þeim réttar upplýsingar um hvar barnið væri niður­komið.

Loks fannst drengurinn í tjaldi, hann var kaldur enda var sex gráðu frost. Alexandra hafði ekki gert neitt til að vernda barnið frá kuldanum, hann var hvorki klæddur né með teppi. Hann grét ekki en hreyfði sig þó. Farið var með hann á slysa­deild.

Tjaldið þar sem ung­barnið fannst.

Þegar Alexandra var spurð að því hvers vegna hún hafi skilið barnið eftir í þessum aðstæðum sagði hún: „Hvað er okkur sagt að gera ef flugvél skyldi hrapa? Ég bjargaði sjálfri mér fyrst.“ Hún er talin hafa verið undir áhrifum fíkniefna við yfirheyrsluna. Hún sagðist hafa logið til um stað­setningu barnsins því hún óttaðist það að missa tjaldið sitt.

Tjaldið þar sem ung­barnið fannst.

Lögreglu­þjónninn sem er yfir máli Alexöndru segir enga afsökun fyrir gjörðum hennar: „Fólki í þessari stöðu er alltaf boðin aðstoð. Hún kaus að nýta sér hana ekki og neitaði þegar reynt var að hjálpa henni. Fólki er frjálst að gera það sem það vill í þessari stöðu en þú ferð ekki svona með lítið barn. Ég ber fullan skilning á geð- og fíkni­sjúkdómum en þegar málið er svona, þegar líf barns er í húfi, missi ég allan skilning. Það er ekkert sem afsakar svona lagað.“

Alexandra hefur verið kærð fyrir vanrækslu á barni, annarrar gráðu líkams­árás, fölsun á sönnunar­gögnum og fyrir að koma lífi barns í hættu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna