Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Uppreisnin á Austurvelli: Þegar Haukur Hilmarsson hengdi upp Bónusfánann

Blessuð sé minning Hauks.
Blessuð sé minn­ing Hauks.

Þann 8 nóvember árið 2008 stóð Búsáhalda­byltingin hvað hæst. En þessi mótmæli þróuðust í aðra átt þennan dag en venjulega.

Fleiri þúsund manns þustu á Austur­völl á hverjum laugar­degi og hlustuðu á hverja ræðuna á eftir annarri með steyptan hnefann á lofti. Og fór svo heim. En þessi laugar­dagur var öðruvísi en aðrir.

Gekk skrefi lengra

Ungur ofurhugi, Haukur Hilmarsson, ákvað að ganga lengra en nokkur hafði þorað í þessari svokölluðu byltingu. Morgun­blaðið lýsti þessu með þessum orðum; „Einn mótmælandi sá sig knúinn til að sýna hug sinn í verki. Hann lagði stiga að Alþingis­húsinu í garðinum við innganginn að pöllunum, hljóp upp á þak og dró þar fána Bónus-verslunar­keðjunnar að húni.“ Þetta hafði ekki verið gert áður, að nokkur færi upp á hið virðulega hús Alþingis til að mótmæla en þetta var ekki það eina sem vakti athygli. „Er lögreglan hugðist fjarlægja fánann og manninn safnaðist mikill fjöldi manna saman í portinu og var þar aðsúgur gerður að lögreglu. Engin átök brutust út en einn var færður í fanga­geymslur.“ Hinn almenni íslenski borgari sem sagt mótmælti handtöku og kom í veg fyrir hana sem verður að teljast afar sjaldgæft. Skipuleggjandi mótmælanna, Hörður Torfason vildi þurrka hendur sínar af athæfi Hauks og sagði það grafa undan friðsælu mótmælunum sem hann boðaði.

Færa má rök fyrir því að í kjölfar þess að Haukur setti upp Bónus­fánann hafi mótmælin breyst og fólk farið að þora að mótmæla á frumlegri hátt en að steyta hnefanum upp í loftið yfir ræðum og skrifa svo reiða Facebookfærslu þegar heim var komið.

Handtöku mótmælt

Tveimur vikum síðar var Haukur Hilmarsson hand­tekinn og færður á lögreglu­stöðina við Hlemm. Múgur og margmenni mætti þá með móður Hauks, Evu Hauks­dóttur, í farar­broddi. Var hand­tökunni mótmælt af hörku og reyndu sumir mótmælendur að brjóta sér leið inn á lögreglu­stöðina. „Hauki Hilm­ars­syni, sem hand­tek­inn var í gær vegna mót­mæla við Alþing­is­húsið fyr­ir hálf­um mánuði, var sleppt nú laust fyr­ir klukk­an 18 en hóp­ur fólks hafði staðið fyr­ir mót­mæl­um utan við lög­reglu­stöðina við Hverf­is­götu og kraf­ist lausn­ar manns­ins. Óþekkt­ur aðili mun hafa borgað sekt fyr­ir Hauk,“ stóð í frétt Mbl.is af þessu tilefni.

Fetað í fótspor Hauks

Ekki var þetta þó í fyrsta skipti sem Haukur stóð fyrir ólöglegri fána­uppsetningu. Sumarið 2008 hengdi hann upp fána Jörunds Hundadaga­konungs ofan á Stjórna­ráðs­bygginguna. Næstum sléttum 10 árum síðar fetaði bróðir Hauks, Darri Hilmarsson í fótsport bróður síns er hann hengdi upp fána Tyrklands í mótmæla­skyni við léleg viðbrögð íslenskra yfirvalda við að fá svör um afdrif Hauks í Sýrlandi. Aðgerðin var framkvæmd af aðgerðar­hópnum „Hvar er Haukur?“ en aðspurður um tilgang mótmælanna sagði Darri í viðtali við Frétta­blaðið, „við vonuðumst til þess að sparka aðeins í rassgatið á stjórn­völdum.“ Fannst Darra stjórn­völd geta gert meira í að fá svör frá Tyrklandi. „Þau gætu til dæmis spurt beint hvort Tyrkir séu með Hauk lífs eða liðinn og eins hvað Tyrkir hafi gert með lík á svæðinu.“

Bréfið

Samkvæmt nafnlausu bréfi sem barst móður­bróður Hauks fyrr á árinu og Mannlíf hefur undir höndum, kemur fram að starfs­maður sem vann náið með Guðlaugi Þór Þórðar­syni í utan­ríkis­ráðuneytinu, hafi reynt hvað hann gat til að koma í veg fyrir að leitað yrði að líki Hauks en hann er talinn hafa fallið í árás Tyrkja­hers á sveitir Kúrda í Afrin héraði í Sýrlandi í febrúar 2018. Er starfs­maðurinn sagður hafa haft óbeit á Hauki og hans fjöl­skyldu og ávallt kallað hann „Bónus­fánann,“ með tilvísun í atvikið sem hér er rifjað upp að ofan. Ekki var unnt að staðfesta um lögmæti bréfsins.

Baksýnis­spegill þessi birtist áður hjá Mannlífi þann 24. september 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim