Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

Við rann­sókn máls­ins fund­ust jafn­framt sam­skipti í far­síma sem vöktu athygli lög­reglu

Ármúli
Ármúli Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Skjáskot/Ja.is

Karl og kona hafa verið dæmd í átta ára fang­elsi hvort um sig fyrir að flytja rúm­lega 18 kíló af kóka­íni til Íslands.

Dómur féll í Hér­aðs­dómi Reykja­ness 24. sept­em­ber. Jose Manuel Del Bosque og Cristina Rodriguez Santos voru ákærð fyrir stór­fellt fíkni­efna­laga­brot með því að hafa í félagi staðið að inn­flutn­ingi á sam­tals 18.346 grömmum af kóka­íni. Styrk­leiki efn­anna var á bil­inu 81 til 83 pró­sent og taldi ákæru­valdið þau ætluð til sölu­dreif­ingar hér á landi í ágóða­skyni.

Parið kom til lands­ins frá Frank­furt að kvöldi 27. maí. Konan var stöðvuð af toll­gæsl­unni á Kefla­vík­ur­flug­velli en mað­ur­inn var þá kom­inn út úr flug­stöð­inni. Hann sneri aftur eftir að konan hafði sam­band við hann. Við gegn­um­lýs­ingu á ferða­töskum þeirra kom í ljós óvenju­legur massi í botni beggja taskna og próf­anir gáfu jákvæða svörun við kóka­íni.

Í annarri tösk­unni fund­ust rúm­lega 9,1 kíló af kóka­íni og rúm­lega 9,2 kíló í hinni. Efnunum hafði verið komið fyrir undir fölskum botnum taskn­anna.

Við rann­sókn máls­ins fund­ust jafn­framt sam­skipti í far­síma manns­ins sem vöktu athygli lög­reglu. Þar á meðal voru sam­skipti á Telegram við aðila sem not­aði not­anda­nafnið SanAndres666. Maðurinn hafði sent við­kom­andi skjá­skot úr Google Maps þar sem leiðin frá Kefla­vík­ur­flug­velli að Ármúla í Reykja­vík hafði verið slegin inn. Hann sendi einnig skjá­skot þar sem hann hafði spurt ChatGPT hvað það kost­aði að taka Flybus og leigu­bíl á áfanga­stað­inn. Skömmu fyrir mið­nætti til­kynnti hann síðan að hann væri lentur á Íslandi.

Maðurinn sagði síðar við lög­reglu að hann hefði sent skjá­skotið af leið­inni að Ármúla vegna þess að maður, sem hann kall­aði Adam, hefði spurt hvert hann væri að fara og hvað hann væri að gera. Hann sagð­ist jafn­framt hafa spurt Adam hvort ein­hver gæti sótt þau á flug­völl­inn.

Bæði neit­uðu að hafa vitað af kóka­ín­inu og héldu því fram að ferðin til Íslands hefði verið ætluð til ferða­laga og afþrey­ingar. Dómurinn taldi fram­burð þeirra hins vegar ótrú­verð­ugan og í mörgu til­liti með ólík­inda­blæ. Talið var sannað, hafið yfir skyn­sam­legan vafa, að þau hefðu gerst sek um þá hátt­semi sem þeim var gefin að sök.

Þau voru bæði dæmd í átta ára fang­elsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl