Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Frægt fólk sem þú vissir ekki að væru tvíburar – Sjáðu myndirnar!

Vin Diesel og Paul Sinclair
Vin Diesel og Paul Sinclair

E News! tók saman lista yfir fræga einstaklinga sem ekki allir vissu að væru tvíburar.

Til gamans á þessum fína sunnudegi má hér fyrir neðan skoða ljós­myndir af frægum einstaklingnum sem sennilega fáir vissu að ættu sér tvíbura­systkin.

Chloe og Noah Schnapp

Chloe og Noah Schnapp

Stranger Things stjarnan Noah Schnapp á tvíbura­systurina Chloe en hin ungu systkini eru mjög náin.

Christopher og Parker Posey

Christopher og Parker Posey

Gamanleikonan Parker Posey á tvíbura­bróðurinn Christopher sem starfar sem lögmaður í Atlanta.

Daniel og Jon Heder

Daniel og Jon Heder

Hvað er betra en Jon Heder? Tveir Jon Heder! Daniel Heder er víst ansi vanur að þurfa að skrifa eiginhandar­áritanir fyrir eineggja tvíbura­bróður sinn, Napoleon Dynamite leikarann Jon Heder. Alls eru Heder systkinin sex talsins.

Giovanni og Marissa Ribisi

Giovanni og Marissa Ribisi

Leikarinn sem lék skrítna bróður Phoebe í Friends, Giovanni Ribisi á tvíbura­systurina Marissu en hún er leikkona eins og brósi.

Hunter og Scarlett Johansson

Hunter og Scarlett Johans­son

Marvel-leikkonan og söngkonan Scarlett Johansson á tvíbura­bróðurinn Hunter. „Ég finn svo mikla tengingu við hann. Hann er með hjarta úr gulli,“ sagði Scarlett í viðtali um árið.

Jacqueline and Jill Hennessy

Jacqueline og Jill Hennessy

Rithöfundurinn og sjónvarps­frétta­konan Jacqueline Hennessy þykir svo lík tvíbura­systur sinni, Crossing Jordan leik­konunni Jill Hennessy, að hún þarf ítrekað að útskýra fyrir aðdáendum Jill að hún sé systir hennar. Fæstir trúa því þó.

Jake og Joseph Fiennes

Jake og Joseph Fiennes

Hinn huggulegi stór­leikari Joseph Fiennes á sér tvíeggja tvíbura, hann Jake, sem er stór­stjarna á sviði skipulagningar á landi og auðlyndum þess, í heima­landinu Bretlandi. Alls eru Fiennes sex talsins en sá elsti, Ralph er einnig leikari eins og Joseph.

Javon Walton og Jaden Walton

Javon Walton og Jaden Walton

Euphoria-stjarnan Javon Walton á eineggja tvíbura­bróður að nafni Jaden en hann virðist hafa meiri áhuga á íþróttum en leik, samkvæmt Instagram-reikningi hans.

Joselin og Judy Reyes

Joselin og Judy Reyes

Leik­konurnar Joselin og Judy Reyes eru tvíeggja tvíburar en þær hafa aðeins einu sinni leikið saman en það var í þætti Scrubs.

Joy og Eva Green

Joy og Eva Green

Franska leikkonan og fyrirsætan Eva Green á tvíbura­systur að nafni Joy. Samkvæmt Evu kom þeim frekar illa saman þegar þær voru yngri en eru nánari í dag. Joy er gift ítölskum greifa og býr með honum og börnum þeirra og passar upp á vínekrur þeirra. Ekki slæmt líf það.

Laverne Cox og M Lamar

Laverne Cox og M Lamar

Orange is the New Black stjarnan Laverne Cox á eineggja tvíbura að nafni M Lamar. Lamar er óperu­söngvari og tónskáld en hann lék systur sína í einum þætti í Orange is the New Black en þá hugsar karakter Laverne til baka frá því að áður en hún fór í kynskipti­aðgerð. Að sögn Laverne eru systkinin afar náin.

Michael og Ashton Kutcher

Michael og Ashton Kutcher

Michael og Ashton Kutcher eru tvíburar en Michael greindist með heila­lömun aðeins þriggja ára gamall og fór í hjarta­aðgerð 13 ára. Árið 2012 sagði Ashton, sem heitir í raun Chris, frá heila­lömun bróður síns en Michael var reiður honum í þó nokkurn tíma því hann vildi ekki vera andlit heila­lömunar. En hann hefur nú fyrir­gefið brósa og segir nú að hann hafi í raun gert honum risa­greiða með þessu, því þetta hafi leyft honum að vera hann sjálfur. Michael er aðgerðar­sinni og þriggja barna faðir.

Nicholas Brendan og Kelly Donovan

Nicholas Brendan og Kelly Donovan

Buffy the Vampire Slayer leikarinn Nicholas Brendan á eineggja tvíbura að nafni Kelly Donovan. Kelly hefur sjálfur leikið nokkur lítil hlutverk, meðal annars tvífara bróður síns í tveimur Buffy-þáttum. Ómögulegt er að sjá hvor er hvor á myndinni hér að ofan.

Patricia og Gisele Bündchen

Patricia og Gisele Bündchen

Ein fallegasta kona heims, hin brasilíska Gisele Bündchen, á sér tvíbura­systur og hún er ekki síður falleg, maður minn lifandi. Patricia lifir rólegra lífi en systir hennar en hún sér um viðskipta­hlið Gisele og gerir það af myndar­skap.

Rachel og Kiefer Sutherland

Rachel og Kiefer Suther­land

Rólegur Kiefer! 24-leikarinn Kiefer Sutherland á tvíbura­systur að nafni Rachel. Að sögn móður þeirra voru þau farin að hugsa um hvort annað, slík voru tengslin.

Samantha og Charlotte Ronson

Samantha og Charlotte Ronson

Plötu­snúðurinn Samantha Ronson, sem sennilega er þekktust fyrir að hafa átt í ástar­sambandi við Lindsey Lohan, á tvíbura­systurina Charlotte, sem er tísku­hönnuður. Mark Ronson tónlistar­maður, er eldri bróðir þeirra, þannig að það er gott í þessu geni.

Sami og Rami Malek

Sami og Rami Malek

Óskars­verðlauna­leikarinn Rami Malek á sér tvíbura­bróður að nafni Sami. Þegar Rami og Sami voru yngri voru þeir vanir að þykjast vera hvor annan en þeir hafa orðið ólíkari með tímanum að sögn Sami, sem starfar sem kennari.

Vin Diesel og Paul Sinclair

Vin Diesel og Paul Sinclair

Fast and the Furious leikarinn Vin Diesel er tvíeggja tvíburi. Bróðir hans heitir Paul Sinclair en hann hefur alltaf passað vel upp á einkalíf sitt og því er lítið vitað um hann annað en að hann aðstoðar tvíbura­bróður sinn stundum í vinnunni.

Wade og Alanis Morissette

Wade og Alanis Moris­sette

Kanadíska stór­söngkonan Alanis Morissette á tvíbura­bróðurinn Wade, sem er sjálfur tónlistamaður og jóga kennari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt