Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Innlent

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Millie Bobby Brown svarar gagnrýninni: „Ég er að reyna mitt besta!“

Millie Bobby Brown
Millie Bobby Brown Mynd: Instagram-skjáskot

Millie Bobby Brown svarar aðdá­endum sínum sem segja breska hreim­inn vera að hverfa hjá ungu leikkon­unni.

Stranger Things stjarnan Millie Bobby Brown var gagn­rýnd eftir að hafa birst í sjón­varps­við­tali nýverið, en aðdá­endur hennar sögðu hana vera komna með meira amer­ískan hreim, á kostnað breska hreims­ins sem henni sé eðl­is­lægur, enda bresk. Þessu svar­aði Millie.

„Leyfðu mér að tjá mig um þetta snöggvast,“ sagði hin 20 ára leik­kona við TikTok-stjörn­una Max Balegde í mynd­skeiði í gær. „Ég er leik­kona. Almenn­ingur sá mig alast upp. Ég ólst upp í Ameríku. Ég kem á sett og ég er leik­kona og ég aðlag­ast. Þannig að ég vil herma eftir fólki.“

Sagði Millie að hún „gæti ekki gert að því“ ef hún hljóm­aði meira amer­ísk, þegar hún er í kringum ein­hvern eins og unnusta sinn, Jake Bongiovi eða spjall­þátta­stjórn­and­ann Jimmy Fallon. En hún segir það ekki aðeins ger­ast í kringum Amer­ík­ana, heldur við­ur­kenndi hún að þegar hún er í Englandi, snar­auk­ist breski hreim­ur­inn.

„Ég geri þetta ekki vilj­andi,“ útskýrði hún. „Mér þykir leitt ef þetta móðgar þig. Ok, en hlust­aðu, ég er að reyna mitt besta. Ég er að reyna mitt besta!“

Max var fljótur að verja hana: „Hún er Millie Bobby Brown og hún getur talað á þann hátt sem hún vill.“

Til að hjálpa henni að sanna það hversu mik­ill Breti hún væri, gaf áhrifa­vald­ur­inn henni gjafa­bréf á hinn geysi­vin­sæla veit­inga­stað, Nando´s, sem hún þakk­lát þáði og sagði: „Veistu að ég er að fara að borða á Nando´s í hádeg­inu? Ég ætla í alvör­unni að nota þetta.“

Hreimur leikkon­unnar vakti athygli þegar hún mætti í við­tal til Jimmy Fallon í The Tonight Show spjall­þátt­inn en þar tal­aði hún meðal ann­ars um trú­lofun sína og sonar Jon Bon Jovi.

„Breski hreim­ur­inn hennar heyr­ist varla lengur,“ skrif­aði einn virkur í athuga­semdum og annar bætti við: „Hún ber fram ákveðin orð eins og Breti en hrynj­and­inn sem hún notar er svo amer­ískur.“

Ein­hverjir aðdá­endur átt­uðu sig á ástæð­unni, að hún sé búin að vera mikið með unnust­anum, Jake, sem er fæddur í New Jersey. „Ége held að hún sé bara að glata hreimnum af því að hún eyðir svo miklum tíma í Banda­ríkj­unum með unnust­anum.“

Nýjasta kvik­mynd Millie Bobby Brown heitir Damsel og kemur brátt í kvik­mynda­hús.

Fréttin er unnin upp úr frétt eon­line.com.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

„Við erum að skapa framandi verur“
Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027