Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Rósa bæjarstjóri fullyrðir að hafa ekkert vitað – Leyndu bæjarlögmaður og sviðsstjóri hana gögnum?

Eins og Mannlíf hefur greint frá eru deilur í gangi á milli meirihlutans í Hafnar­firði undir stjórn Rósu Guðbjarts­dóttur bæjar­stjóra, og meirihlutans í Reykjavík undir stjórn Dags B. Eggerts­sonar borgar­stjóra, varðandi áætlaðan flutning malbikunar­stöðvarinnar Höfða frá Reykjavík til Hafnar­fjarðar.

Íbúar í Hafnar­firði hafa sett í gang undir­skriftar­lista þar sem mótmælt er að malbikunar­stöðin Höfði verði verði flutt úr Reykjavík í hið vaxandi, blómlega og fjölskyldu­væna hverfi í Hafnar­firði, Ásvelli.

Orð stjórn­mála­mannanna Rósu og Dags um málið eru ansi ólík og margt sem sagt hefur gengur einfald­lega ekki upp, þegar málið er skoðað frá hliðum beggja og krufið til mergjar.

Rósa og meirihlutinn furðaði sig á því á bæjar­stjórnar­fundi að Reykjavík undir stjórn Dags, væri að koma nánast „bakdyramegin“ með heila malbikunarstöð úr Reykjavík til Hafnar­fjarðar. Samkvæmt fundar­gerðinni vissi Rósa ekki af þessum stóra „gjörningi“ þrátt fyrir að vera æðsti og valda­mesti einstaklingurinn í bæ sem telur yfir 30 þúsund íbúa.

Dagur segir aftur á móti að allt varðandi málið sé uppi á borðinu og að lögfræðingur Hafnar­fjarðar­bæjar, Ívar Bragason, og sviðs­stjóri sama bæjar, Sigurður Haraldsson, hafi klárlega vitað af málinu, enda séu gögn til sem sanni það.

Og þá er spurt: Voru Ívar og Sigurður að fara á bakvið yfirmann sinn, bæjar­stjórann Rósu Guðbjarts­dóttur, eða vissi hún af fyrir­huguðum flutningi Höfða til Hafnar­fjarðar, en kaus af einhverju ástæðum að viðurkenna það ekki? Hvers vegna ættu bæjar­lögmaður og sviðs­stjóri að halda því leyndu fyrir Rósu að malbikunar­stöðin Höfði væri að flytja til Hafnar­fjarðar?

Þess má geta að Mannlíf hefur sent bæjar­lögmanni Hafnar­fjarðar, Ívari Bragasyni, og sviðs­stjóra, Sigurði Haralds­syni, fyrir­spurn með vísan í upplýsingalög nr. 140/2012. þess efnis hvort þeir hafi vitað af málinu og ef svo er þá hvort þeir hafi greint Rósu Guðbjarts­dóttur frá því.

Mannlíf sendi fyrir­spurn til Rósu Guðbjarts­dóttur varðandi málið með vísan í upplýsingalög nr. 140/2012.

Hér að neðan eru samskipti blaða­manns Mannlífs og Rósu Guðbjarts­dóttur bæjar­stjóra Hafnar­fjarðar; spurningar blaða­manns og svör hennar við þeim:

Blm: Ert þú búin að ræða við Dag B. Eggertsson borgar­stjóra um mál Höfða? Ef svo er, þá hvenær og með hvaða hætti, og hvað kom út úr því samtali?

Rósa: Bæjarráð Hafnar­fjarðar fól bæjar­stjóra að ræða við borgar­stjórann í Reykjavík um þetta mál á fundi sínum 1. júlí sl. og ræddum við saman daginn eftir. Ljóst er að við borgar­stjóri munum verða í sambandi um málið  áfram þegar frekari upplýsingar liggja fyrir. Andstaða bæjar­yfirvalda í Hafnar­firði við fyrir­hugaðan flutning þessarar starfsemi frá Reykjavík til Hafnar­fjarðar liggur hins vegar skýr fyrir.

Blm: Vissir þú sem bæjar­stjóri ekki af fyrir­huguðum flutningi Höfða til Hafnar­fjarðar?

Rósa: Fyrir­ætlanir Malbikunar­miðstöðvarinnar Höfða hf., sem er félag í eigu Reykja­víkurborgar, voru ekki bornar undir mig sem bæjar­stjóra Hafnar­fjarðar, heldur keypti Höfði lóð að Álhellu 18 í Hafnar­firði þar sem Munck Ísland hefur haft starfs­leyfi fyrir mun minni malbikunarstöð. Starfs­menn Hafnar­fjarðar­bæjar upplýstu Höfða um það starfs­leyfi sem Umhverfis­stofnun hefur veitt á lóðinni og þurfti ekki aðkomu bæjar­stjóra að þeirri upplýsinga­gjöf. Þegar fréttir fóru að berast um mögulegan flutning allrar starfsemi Malbikunar­stöðvarinnar Höfða til Hafnar­fjarðar á þessa lóð var málið þegar sett á dagskrá bæjarráðs að frumkvæði meirihluta bæjar­stjórnar til þess að ræða möguleg viðbrögð af hálfu bæjarins.

Blm: Ef þú vissir ekki um málið, hvernig stendur þá á því að bæjar­stjóri Hafnar­fjarðar veit ekki af slíkum risa­stórum gjörningi í sem æðsti yfirmaður í sínu eigin sveitar­félagi?

Rósa: Viðskipti með lóðir fara fram á milli lóðarhafa og væntanlegra kaupenda og eru bæjar­stjóri og bæjar­yfirvöld ekki aðilar að viðskiptum með lóðir sem ekki eru á forræði sveitar­félagsins. Hlutverk starfs­manna bæjarins er þá fyrst og fremst að svara fyrir­spurnum í tengslum við skipulagsmál og öðrum þáttum er lúta að valdsviði sveitar­félagsins.

Blm: Vissi Dagur B. Eggertsson af fyrir­huguðum flutningi Höfða til Hafnar­fjarðar?

Rósa: Spurningum um hvenær borgar­stjóra var kunnugt um fyrir­ætlanir Höfða ber að beina til hans.

Blm: Ljóst er að annaðhvort veistu um það vegna mögulegs samtals við hann sem boðað var til í áður­nefndri fundar­gerð, eða þá að þú veist ekki hvort hann hafi vitað af þessu vegna þess að þú sért ekki búinn að ræða málið við hann. Hvort er það?

Rósa: Borgar­stjóra var kunnugt um málið þegar við hófum okkar samtal enda þegar verið fjallað um það opinber­lega.

Blm: Er það rétt að fyrir­hugaður flutningur Höfða frá Reykjavík til Hafnar­fjarðar hafi verið frágenginn í byrjun maí 2021 og að þessi flutningur hafi staðið til frá því í apríl sama ár?

Rósa: Mér er ekki kunnugt um tíma­setningar varðandi áætlanir Malbikunar­stöðvarinnar Höfða.

Blm: Fékk Ágúst Bjarni Garðarsson, bæjar­fulltrúi Framsóknar­flokksins og formaður bæjarráðs Hafnar­fjarðar, vitneskju af þessum fyrir­hugaða flutningi á sama tíma og þú? Ef svo er, hvenær var það nákvæmlega? Var það mögulega á fundi þeim sem haldinn var 1. júlí s.l.? (Bæjarráð – 3577. Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strand­götu 6, 01.07.2021. 2106621 – Höfði, malbikunarstöð).

Rósa: Fréttir fjölmiðla í lok júní um að Malbikunar­stöðin Höfði hefði hug á því að flytja starfsemi sína frá Reykjavík til Hafnar­fjarðar komu bæði formanni bæjarráðs Hafnar­fjarðar og bæjar­stjóra að óvörum. Meirihluta­flokkarnir í Hafnar­firði stóðu svo saman að því að taka málið strax fyrir á fundi bæjarráðs 1. júlí sl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim