Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Ísing olli hræðilegu flugslysi í Ljósufjöllum – Pálmar missti eiginkonu og ungbarn

Laugar­daginn 5. apríl árið 1986 lögðu hjón af stað í flug ásamt 11 mánaða gamalli dóttur sinni. Leiðin lá frá Ísafirði til Reykja­víkur en þrír aðrir farþegar voru samferða hjónunum. Veðrið var mjög slæmt en þegar flugvélin flaug yfir Stykkis­hólmi sendi flug­maðurinn beiðni um að fá að lækka flugið úr 6.000 fetum niður í 5.000.

Stuttu síðar hvarf vélin af radar.

Rúmum klukku­tíma síðar heyrðist í neyðar­sendi úr vélinni sem gaf til kynna að vélin væri í 640 metra hæð í Ljósu­fjöllum á Snæfellsnesi. Þegar viðbragðs­aðilar komust loks að brakinu blast við hræðileg sjón. Flug­maðurinn og þrír farþegar hans voru látnir, þar á meðal unga dóttir hjónanna. Auk hjónanna var maður um þrítugt á lífi en voru þau illa slösuð. Svo fór að lokum að konan lést.

Flug­slysið í Ljósu­fjöllum er eitt mann­skæðasta flugslys Íslands­sögunnar.

DV fjallaði um málið á sínum tíma: 

Fimm fórust í flug­slysinu á Snæfellsnesi:

Ísing og niður­streymi orsök flug­slyssins? – þegar TF-ORM hrapaði í Ljósu­fjöllum. Tveir menn komust lífs af

Talið er að mjög slæmt veður, ísing og niður­streymi yfir Ljósu­fjöllum hafi orsakað flug­slysið á Snæfellsnesi á laugardag, þegar tveggja hreyfla Piper Aztec flugvél, TF-ORM frá Flug­félaginu Ernir á Ísafirði, hrapaði suður af Sóleyjardal. Fimm fórust en tveir menn komust lífs af, mikið slasaðir. Flugvélin var í blindflugi frá Ísafirði til Reykja­víkur. Síðast heyrðist til flug­vélarinnar kl. 13.19. Þá var hún yfir Stykkis­hólmi. Margt bendir til að flug­maðurinn hafi lent í erfið­leikum með flug­vélina vegna ísingar því að hann bað um leyfi til að lækka flugið úr 6.000 fetum niður í 5.000 fet. Stuttu seinna hvarf flugvélin af radar flug­umferðar­stjórnar á Kefla­víkur­flugvelli og einnig út af frumradar. Þá var strax ljóst að óhapp hafði hent vélina. Flugvél Flugmála­stjórnar var strax send vestur yfir Snæfellsnes og kl. 14.29 heyrðist í neyðar­sendi TF-ORM sem gaf til kynna að flugvélin væri í 640 metra hæð í Ljósu­fjöllum.



Mikil ókyrrð og ísing var í lofti og sterkir svipti­vindar yfir Ljósu­fjöllum – niður­streymi mikið. Mældist 50 hnúta vindhraði í 4.000 feta hæð þannig að þar hafa verið um tíu vindstig, en í það miklu niður­streymi er ógjörn­ingur að fljúga flugvél og þá sérstak­lega sé ísing á henni. Talið er að flugvélin hafi lent í niður­streymi og steypst niður í hlíðar Ljósu­fjalla, suður af Sóleyjardal. Þar er hæð fjallsins um 1.000 metrar. Brak flug­vélarinnar, sem var heillegt, fannst í brattri snævi þakinni hlíð, í 640 m hæð.

Nef flug­vélarinnar var mikið laskað og vængir hennar lausir frá þegar hún fannst, kl. 23.57 á laugardags­kvöldið, liðlega níu klukku­stundum eftir að slysið varð. Það voru menn frá Flug­björgunar­sveitinni í Reykjavík, sem fóru upp eftir Draugadal og yfir í Sóleyjardal, sem komu fyrst að flug­vélinni. Veður var mjög slæmt þar sem flugvélin var, þoka og mikill vindur og snjór. Fljótlega kom í ljós að þrír farþegar flug­vélarinnar voru á lífi, en mikið slasaðir. Þeir voru allir aftast í vélinni, hjón og einn karlmaður. Ungt barn hjónanna var látið.

Björgunar­sveitar­mennirnir komu slösuðum fyrir í snjóbíl og síðan var haldið niður í átt til Álfta­fjarðar. Þegar snjó­bíllinn var kominn 2 km frá slysstað, kl. 02.16, kom þyrla Landhelgis­gæslunnar til að ná í þá slösuðu. Konan var þá látin. Þyrlan flutti mennina tvo til flug­vallarins í Stykkis­hólmi þar sem tvær tveggja hreyfla flugvélar frá Sverri Þórodds­syni biðu. TF-GTO flutti hina slösuðu til Reykja­víkur þar sem þeir voru lagðir inn á Borgar­spítalann. Þar liggja mennimir mikið slasaðir og þungt haldnir. Þeir eru ekki taldir í lífshættu. Líkin fimm voru flutt niður í Álfta­fjörð með snjóbílum og þau flutt til Stykkis­hólms um nóttina. Komið var með líkin til Reykja­víkur í gærkvöldi.

DV lýsti einnig björgunarafrekinu en aðstæðurnar voru hreint ekki góðar enda veður afar slæmt:

Slæmt leita­veður:

„Strákarnir urðu að skríða að flakinu“ – sagði Amgrímur Hermannsson hjá Flugbjövgunarsveitinni í Reykjavík

Það voru sex mjög vanir fjall­göngumenn frá Flug­björgunar­sveitinni í Reykjavík og Friðrik Jónsson, héraðs­læknir í Stykkis­hólmi, sem komu fyrstir að flaki TF-ORM í Ljósu­fjöllum. Þeir lögðu upp frá Örlygs­stöðum kl. 20.30 á laugardags­kvöldið og voru komnir að flakinu kl. 23.57. Þeir fóru upp á nýjum ítölskum snjóbíl sem er mjög brattgengur.

„Veðrið var slæmt og aðstæður ekki góðar. Strákamir og Friðrik þurftu að skríða upp brattann að flakinu og um leið að leiðbeina snjó­bílnum,“ sagði Amgrímur Hermannsson hjá Flug­björgunar­sveitinni í Reykjavík.

„Þegar búið var að ná farþegunum þremur, sem voru með lífsmarki í flugvélar­flakinu, út úr því var haldið niður. Þegar snjó­bíllinn var kominn niður um tvo km frá slysstað tókst þyrlu Landhelgis­gæslunnar að læðast upp í sömu hæð og finna lendingar­stað. Þeir slösuðu voru teknir um borð í þyrluna og fluttir á flug­völlinn í Stykkis­hólmi þar sem tveggja hreyfla flugvél, sem er fljótari í förum heldur en þyrlan, flutti þá til Reykja­víkur,“ sagði Arngrímur.

Hann sagði einnig að leitin og björgunin hefðu ekki getað gengið betur þegar í huga er haft slæmt veður og erfið færð.

„Björgunar­menn frá Berserkjum í Stykkis­hólmi, sem lögðu fyrstir afstað, gangandi, áttu í erfið­leikum. Það vom 11-12 vindstig í fjallinu þegar þeir vom á ferðinni. Þeir fuku um koll og urðu að hætta þegar þeir áttu stutt eftir að flakinu,“ sagði Arngrímur.

Þeir sem komust af:

Mennirnir tveir sem komust af úr flug­slysinu á Snæfellsnesi eru: Pálmar Gunnarsson, lögreglu­maður á Ísafirði, og Kristján Guðmundsson, sjómaður frá Bolungarvík.

Þeir sem fórust: 

Þeir sem fómst í flug­slysinu á Snæfellsnesi voru:
• Sigurður Auðunsson hagræðingar­ráðunautur, 57 ára, Efrahvoli, Mosfellsveit. Hann lætur eftir sig konu og þrjú uppkomin börn.
• Kristján Sigurðsson, bóndi að Ármúla við Ísafjarðar­djúp, 49 ára. Hann lætur eftirsig konu og sex böm.
• Smári Ferdinandsson flugmaður, 35 ára, Hjalla­braut 35, Hafnar­firði.
Hann lætur eftir sig unnustu.
• Auður Alberts­dóttir, 28 ára, Ísafjarðar­vegi 4, Hnífsdal, og eins árs
dóttir hennar, Erla Björk Pálmars­dóttir. Auður lætur eftir sig fjögurra ára
dóttur. Hún var kona Pálmars Gunnars­sonar lögreglu­þjóns sem komst af
í flug­slysinu.

Einungis þremur dögum eftir slysið tók Morgun­blaðið viðtal við Pálmar Gunnarsson, sem lifði slysið af við illan leik en missti eiginkonu sína og ungabarn í slysinu. Olli viðtalið miklu fjaðra­foki og fengu læknar á Borgar­spítalanum og Morgun­blaðið töluverða gagnrýni fyrir.

Flugslysa­nefnd og Flugmála­stjórn komust að þeirri niður­stöðu í rannsókn sinni á slysinu að flugvélin hafi lent í niður­streymi sem varð til þess að hún hrapaði í hlíðum Ljósa­fjalla. Aukreitis var niður­staðan sú að hluti orsakarinnar hafi verið að flug­maðurinn hafi ekki verið með fullnægjandi veðurfars­upplýsingar af svæðinu.

Leiddi það af sér breytingar á reglu­gerðum sem og verklagi til að auka flæði uppfærðra veðurspáa á milli Veður­stofu Íslands og flugmanna. Einnig leiddi það af sér endur­skoðun á aðgerðar­skrám flugmanna, bæklingum og fleiri fræðandi efnum sem gefið var út af Flugmála­stjórn auk þess sem það var notað við kennslu flugmanna.

Niður­staða rann­sóknar Flugslysa­nefndar og Flugmála­stjórnar var að flugvélin hafi lent í niður­streymi sem leiddi til þess að hún hrapaði í hlíðum Ljósu­fjalla. Hún komst einnig að þeirri niður­stöðu að hluti orsakarinnar hafi verið flug­maðurinn hafi verið með ófullnægjandi veðurfars­upplýsingar af svæðinu.[10] Það leiddi af sér breytingar í reglu­gerðum og verklagi til að auka flæði uppfærðra veðurspáa á milli flugmanna og Veður­stofu Íslands. Það leiddi einnig af sér endur­skoðun á aðgerðar­skrám flugmanna, bæklingum og öðru fræðandi efni sem gefið var út af Flugmála­stjórn og notað við kennslu flugmanna.[6]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“